Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
BSRB krefst 112 þúsund
krdna mánaðarlauna
f KJARAMÁLAÁLYKTUN 39.
þings Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja er þess krafíst að frá upp-
hafí nýs kjarasamnings verði eng-
inn félagsmaður undir 112 þúsund
króna grunnlaunum á mánuði. Þá
krefst þingið þess að sá kaupmátt-
ur sem samið er um í komandi
kjarasamningum verði tryggður
með viðmið í vísitölu eða öðrum ör-
uggum hætti.
Þá segir í ályktun þingsins, sem
lýkur í dag, að BSRB muni aldrei
samþykkja að afmarkaður hluti af
Kyrrðar-
stund á
Flateyri
FIMM ár voru liðin á fimmtudag
síðan snjóflóðið mikla féll á Flat-
eyri. Dagurinn markaði djúp spor í
sögu þessa litla samfélags er 20
manns létu lífið. Minningarathöfn
hefur verið haldin þennan dag á
hveiju ári síðan flóðið féll. Sam-
kennd er jafnan mikil og loga
kertaljós við flest hús á eyrinni.
Kyrrðarstundin var haldin sam-
tfmis í kirkjunni á Flateyri og
dómkirkjunni í Reykjavík fyrir þá
aðstandendur sem þar eru búsettir.
vinnumarkaði móti kjarasamninga
fyrir allt launafólk í landinu. Eigi
að móta sameiginlega launastefnu
verði sem flestir aðilar vinnumar-
kaðar að koma að þeirri stefnumót-
un eins og raunin var með þjóðar-
sáttarsamninginn 1990.
Ennfremur er þess krafist að
tekjutenging við laun maka öryrkja
og lífeyrisþega verði afnumin og að
heilbrigðisráðherra dragi til baka
þá ákvörðun sína að spara ríkis-
sjóði rúman milljarð króna á ári
með því að hætta að niðurgreiða
Á FUNDI samninganefnda grunn-
skólakennara og launanefndar sveit-
arfélaganna í gær kom fram að
grunnskólakennarar eru ekki tilbún-
ir til að ræða afnám kennsluafsláttar
kennara sem náð hafa 55 og 60 ára
aldri. Þeir lýstu sig hins vegar til-
búna að ræða um sveigjanlegan
starfstíma skóla og einföldun á kjara-
samningi grunnskólakennara, en
þetta eru meðal áhersluatriða sveit-
arfélaganna í kjaraviðræðunum.
ákveðin lyfseðilsskyld lyf. Álögum
á sjúklinga, þ.m.t. komugjöldum á
heilsugæslustöðvar, verði aflétt.
Vilja fortakslaust bann við
uppsögn trúnaðarmanns
Á þingi BSRB var einnig ályktað
um trúnaðarmenn en þess er kraf-
ist að samið verði um fortakslaust
bann við uppsögn trúnaðarmanns.
Þingið leggur einnig áherslu á
styttingu vinnutímans og að viku-
leg vinnuskylda starfsmanna í fullu
starfi verði 36 stundir án skerðing-
Á fundinum fógnuðu fulltrúar
kennara þeim viðhorfum sem fram
komu af hálfu sveitarfélaganna á
samningafundi íyrir einni viku en þar
lýstu sveitarfélögin sig tObúin að
hækka verulega grunnlaun kennara
gegn umtalsverðum breytingum á
vinnutíma og skipulagi skólastarfs.
Kennarar töldu hins vegar að þær
breytingar sem samningsaðilar væru
sammála um að stefna að næðu ekki
fram nema með gagngerri endur-
STJÓRNENDUR Akraneskaup-
staðar tilkynntu á aðalfundi Sam-
bands sveitarfélaga á Vesturlandi að
Akranes myndi ekki segja sig úr
sambandinu eins og þeir höfðu hótað
að gera, en úrsögnin átti að taka gUdi
um áramót.
Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi
á Akranesi, sagði að samkomulag
hefði orðið um að víkka þann sam-
ráðsvettvang sem sveitarfélögin á
Vesturlandi hefðu haft með sér. Fyr-
irhugað væri að stefna að því að búa
til sérstakan samráðsvettvang þar
sem kæmu saman fulltrúar sveitar-
félaganna, aðilar á vinnumarkaði,
þ.e. verkalýðsfélög og aðilar í at-
vinnulífinu, og ríkisstofnanir eins og
Fjölbrautaskóli Vesturlands og Við-
skiptaháskólinn á Bifröst. Hann
ar launa nema að um skemmri
vinnutíma sé sérstaklega samið.
Felld verði á brott úr lögum öll
ákvæði um yfirvinnuskyldu og bak-
vaktir umfram daglega/vikulega
vinnuskyldu.
Loks leggur þingið áherslu á að
engar breytingar verði gerðar á
lögunum um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna frá 1996 án
samvinnu við BSRB en Geir H.
Haarde fjármálaráðherra hefur
lýst vilja sínum til að endurskoða
lögin.
skoðun á starfskjörum kennara og
verulegri hækkun á grunnlaunum
þeirra. Jafnframt lögðu kennarar
áherslu á fækkun nemenda í bekkjar-
deildum. Einnig þyrfti að skilgreina
starf umsjónarkennara sérstaklega
og veita þeim aukið rými vegna um-
sjónar og foreldrasamstarfs.
Á fundinum kom fram vilji beggja
aðila til að stefna að því að ljúka
samningum fyrir áramót þegar gild-
andi samningar renna úr gildi.
sagði að Samband sveitarfélaga á
Vesturlandi yrði áfram til og stjórn
þess yrði jafnframt yfir stjórn hins
nýja samráðsvettvangs.
Gunnar kosinn formaður með
öllum greiddum atkvæðum
Óánægja stjórnenda Akranes-
kaupstaðar var til komin vegna
ágreinings um kjör formanns sam-
bandsins, en Gunnar Sigurðsson,
oddviti minnihlutans í bæjarstjórn
Akraness, var kjörinn formaður á
síðasta aðalfundi í andstöðu við vilja
meirihlutans í bæjarstjórn.
Á aðalfundinum í gær, sem hald-
inn var á Laugum í Sælingsdal, var
Gunnar hins vegar kjörinn formaður
áfram með öllum greiddum atkvæð-
um.
Rúmeninn
ákærður
ÁKÆRA gegn 23 ára gömlum
rúmenskum ríkisborgara var
þingfest fyrir héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Honum er
gefið að sök að hafa stolið
skartgripum, myndbands-
upptökuvélum og fleiri munum
sem samtals eru metnir á um 25
milljónir króna. Rúmeninn hef-
ur játað á sig afbrotin.
Áð sögn Hjalta Pálmasonar,
fulltrúa lögreglustjórans í
Reykjavík í málinu, er há-
marksrefsing sex ár fyrir
þjófnaði. I ákærunni fara tjón-
þolar fram á 5-6 milljónir í
skaðabætur.
Með hass í
flöskum
TOLLGÆSLAN á Keflavíkur- j
flugvelli gerði á mánudaginn
upptæk 200 g af hassi sem falin
voru í tveimur áfengisflöskum.
Hassið fannst í farangri
tveggja tvítugra pilta sem
komu til landsins frá Kaup-
mannahöfn um miðjan dag á
mánudaginn. Við gegnumlýs-
ingu á farangi-i þeirra sást að
þeir höfðu komið fyrir bögglum
í ógegnsæjum áfengisflöskum.
í hvorri flösku voru um 100 g af
hassi.
Tollgæslan lagði hald á efnið
og handtók piltana. Fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík
fer með rannsókn málsins.
Kennara-
deilan rædd
á Alþingi
ALÞINGI kemur saman á
mánudag að nýju eftir kjör-
dæmaviku. Fundur hefst kl.
15 og fer þá fram óundirbúinn
fyrirspurnatími en að því
loknu gengið til dagskrár. Á
þriðjudag er ráðgert að fram
fari umræða utan dagskrár
um kjaradeilu kennara. Það
er Einar Már Sigurðarson,
Samfylkingu, sem er máls-
hefjandi en Geir H. Haarde
fjármálaráðherra verður til
andsvara.
Flogið til
Belfast
FARÞEGAR sem áttu bókað
flug til Dublin á írlandi með
Samvinnuferðum-Landsýn í
gær flugu til Belfast á Norður-
Irlandi vegna verkfalls á flug-
vellinum í Dublin.
Kristófer Ragnarsson, gæða-
stjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, sagði verkfall
starfsmanna flugvallarins hafa
skollið á fyrr í vikunni og því
hefði ferðaskrifstofan þurft að
breyta áætlun sinni. Farþegar
á heimleið í gær fóru akandi til
Belfast og flugu þaðan heim.
Umhverfís-
áhrif athuguð
SKIPULAGSSTOFNUN hef-
ur hafið athugun á umhverfis-
áhrifum stækkunar jarðvarma-
orkuvers á Nesjavöllum í
Grafnings- og Grímsneshreppi.
Aformuð er stækkun raf-
stöðvar úr 76 MW í 90 MW og
varmastöðvar úr 150 MW í 200
MW.
Orkuveita Reykjavíkur er
framkvæmdaraðili verksins en
Verkfræðistofa Guðmundar og
Knstjáns hf. tók saman skýrslu
um mat á umhverfisáhrifum.
BMVAILÁ
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sfmi 585 5050
York steinflísar
Viðhaldsfiríar steinflísar fegra
garðinn þinn og auka notagildi
hans. Skoðaðu úrvalið
á www.bmvalla.is
www.bmvalla.is
Morgnnblaðið/Högni Sigurþórsson
Kennarar ekki til við-
ræðu um kennsluafslátt
Akranes segir
sig ekki úr SSV