Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 fol
MINNINGAR
RAGNA KRISTIN
ÞÓRÐARDÓTTIR
+ Ragna Kristín
Þórðardóttir
fæddist í Bolungar-
vík 11. maí 1938.
Hún lést á liknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi 12. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirkju 20. október.
Látin er æskuvin-
kona mín, Ragna
Kristín. Þær eru
bjartar bernskuminn-
ingarnar frá Bolung-
arvík og þar erum við
Ragna mikið saman í
leik og starfi. Við
fundum hvor aðra sex
ára gamlar og vorum
nær óaðskiljanlegar
öll uppvaxtarárin.
Yndislegar minningar
á ég um okkur Rögnu
þar sem við horfðum
upp í stjörnuprýddan
himininn vaðandi í
norðurljósum, sjón
sem engin orð fá iýst. Á slíkum
stundum kom oft fyrir að við tók-
umst í hendur og önnur sagði:„Við
erum örugglega bestu vinir í
heimi.“ Ragna var greind, hæglát
og prúð með geislandi bros og þessi
stóru, fallegu brúnu augu. Hún ólst
upp á miklu menningarheimili við
ástríki góðra foreldra og systkina.
Þangað var gott að koma.
Þessa vísu orti Hulda Runólfs-
dóttir kennari um Rögnu kornunga.
Ragna Stína raunir dvína lætur.
Skín í móðurfaðmi fríð
falda sólin ung og blíð.
Eftir að við fluttumst báðar að
vestan lágu leiðir okkar ekki eins
oft saman og við hefðum báðar kos-
ið en ég er svo þakklát fyrir að hafa
getað fylgt henni síðasta spölinn,
rifjað upp góðar minningar um lífið
og gildi vináttunnar og við nutum
þess að vera saman aftur. Hún
sýndi mikinn kjark og æðruleysi í
sínum erfiðu veikindum. Það var
líka sannarlega fagurt að verða
vitni að þeirri samheldni og kær-
leika sem hún naut hjá fjölskyldu
sinni og öllu því hjúkrunarfólki sem
annaðist hana í veikindunum. Það
gleymist ekki. Alltaf átti Bolungar-
vík bernskunnar stað í hjarta henn-
ar og það síðasta sem hún sagði við
mig daginn áður en hún dó var:
„Ertu komin, förum vestur.“ Með
söknuði í hjarta kveð ég vinkonu
mína og bið Guð að styrkja aldraða
móður hennar, systur og aðra ætt-
ingja og vini sem nú eiga um sárt
að binda. Góð kona er kvödd.
Vélaug Steinsdóttir.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
AÐAUGLYSINGA
ATVINNU AUG LÝ S I IM G A R
GARÐABÆR
íþróttamiðstöðin Ásgarður
Hresst fólk á öllum aldri óskast í
vaktavinnu í eftirtalin störf:
• starf í baðklefa kvenna í sundlaug
og íþróttahúsi
• starf í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar
Upplýsingar um störfin veitir Árni
Norðfjöro forstöðumaður Ásgarðs
í síma 565 8066 eða á staðnum.
Um er að ræða fjölbreytt störf
á líflegum vinnustað.
í íþróttamiðstöðinni fer fram
íþróttakennsla skólanna,
æfingar íþróttafólks úr Stjörnunni
og þá er sundlaugin vettvangur
líkamsræktar og afþreyingar
fjölmargra bæjarbúa.
Ath: Hœgt er að scekja um ofangreind störf
á heimasiðu Garðabcejar: www.gardabaer.is
Fræðslu- og menningarsvið
Klæðskerameistari,
kjólameistari
eða sveinn!
Við hjá 66°N getum bætt við okkur duglegu
sniðagerðarfólki. Áhugasamir hafi samband
í síma 588 6600 milli kl. 8.00 og 16.00.
Nánari upplýsingar veitir Gíslína.
(gilla.66north@vortex.is).
NORTH
OF ICELAND
Barngóður
einstaklingur óskast til sinna sonum mínum
(5 ára og 11 ára) í þrjá til fjóra tíma á dag, elda
kvöldmat og sinna léttum heimilisstörfum
(ekki þrif). Upplýsingar í síma 567 6785 eða
892 2400, Anna (við búum í Funafold).
Bílamálun
Vantarvanan bílamálara. Þarfaðgeta hafið
störf sem fyrst. Upplýsingar gefur Ingvi.
Bílaspítalinn,
s. 565 4332 og 897 3151.
IRordiœMaMb
Blaðbera
vantar • í Garðaflöt, Garðabæ Upplýsingar fást í síma 569 1122
Hja (VTorgunbJaði n u starfa um 800 bfsöberar a hofuöborgarsvcE'ðinu
HEILöRIGÐlbSTOFNUN
SUOUHNESJA
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Hjúkrunarfræðingur
Laus er afleysingastaða við Heilsugæsluna í
Grindavík. Um er að ræða 80—100% stöðu við
skólahjúkrun og almenn hjúkrunarstörf á
heilsugæslu.
UpplýsingarveitirSólveig Þórðardóttir, hjúkr-
unarforstjóri, í síma 426 7000.
IM A UÐ UNGARSALA
Uppboð
Uppboft munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu
7, Seyðisfirði, sem hér segir á eftirfarandi eign.
Verkstaeöis hús v. Vallarveg, ásamt vélum, tækjum o.fl. Egilsstaðir,
þingl. eig. Dagsverk ehf., gerðarbeiöendur Byggðastofnun og
Gúmmívinnustofan ehf., miðvikudaginn 1. nóvember 2000 kl. 14.00.
Sýslumafturinn á Seyðisfirði,
27. október 2000.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
ísafjörður —
húsnæði óskast
Ríkissjóður leitareftir kaupum á 150—200 m2
skrifstofuhúsnæði á ísafirði. Nauðsynlegt er
að húsnæðið sé á einni hæð og aðgengi innan
dyra sem utan í góðu lagi meðtilliti til fatlaðra.
Tilboð, ergreini stærð, staðsetningu, afhend-
ingartíma og söluverð sendist eignadeild fjár-
málaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík,
fyrir 14. nóvember nk.
Fjármálaráðuneytið.
íbúð eða raðhús
íbúðarhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu
óskast til leigu strax.
Svar óskast sent í pósthólf 7212,
127 Reykjavík.
YMISLEGT
Sumarhús óskast til leigu
Starfsmannafélag Kaupfélags Borgfirðinga
óskar að taka sumarhús á leigu. Tímabil 1. júní
til 31. ágúst 2001. Upplýsingar gefur Jón Þór
Jónasson í síma 430 5620 eða 437 2325.
TIL LEIGU
Vinnustofur — Stúdíó
Múlahverfi
Gott húsnæði ertil leigu, ca 150 fermetrar. Hátt
til lofts, vítttil veggja. Möguleiki á
akstursdyrum. Góð aðkeyrsla, malbikað plan.
Hentar vel fyrir Ijósmyndastofur, teiknistofur,
stúdíó eða snyrtilegan iðnað. Upplýsingar veit-
ir Sigmundur Hannesson hrl. hjá Lögmönnum
við Austurvöll í síma 595 4545.
ATVINNUHUSNÆÐI
Skrifstofuhúsnæði
í Skeifunni
Til leigu er skrifstofuhúsnæði á besta stað í
Skeifunni, 3 skrifstofuherbergi, u.þ.b. 70 fm.
Húsnæðið er laust.
Nánari upplýsingar hjá Lögmannsstofunni
SKeifunni frá kl. 9—17 í síma 568 8650.
LÖGMANNSSTOFAN
Skeifunni
TIL SOLU
Verktakar athugið
Til sölu veggjapallar 4.500 fm.
Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar í síma 567 2230 og 861 1230.
SMAAUGLYSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag íslands
• II, Sálarrannsókn-
arfélagift Sáló
> 1918-2000,
Garðastræti 8,
Reykjavík
Trans- og
skyggnilýsingafundur
f dag, laugardaginn 28. októ-
bar verður breski transmiðillinn
Ron Jordan með trans- og
skyggnilýsingafund í Garða-
stræti 8 kl. 14.00. Fundurinn er
opinn almenningi og verð er kr.
1.800 fyrir félagsmenn en kr.
2.400 fyrir aðra. Ron er afbragðs
góður transmiðill og starfar sem
kennari í duispekiskólanum
Stansted í Englandi.
Petta verður eini opni transfund-
urinn sem Ron heldur á meðan
hann er staddur hér á landi.
Húsið verður opnað kl. 13.30.
Missið ekki þetta einstæða tæki-
færi.
Athl Takmarkaftur fjöldi.
SRFf.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2533
Gönguferð á Keili (378 m
y.s.) sunnudaginn 29. októ-
bor. Brottför frá BSÍ og Mörkinni
6 kl. 10.30. Um 8 km, 4-5 klst. á
göngu, hæðaraukning 280 m.
Fararstjóri Sigrún Huld Þor-
grímsdóttir. Verð 1.500.
www.fi.is, textavarp RUV
bls. 619.
utivist.is
ýg> mbl.is
errmvAt} /vfn