Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 63
fMöftÖtMBMÖÍ£)
UMRÆÐAN
V
1
LAUGMDAÖUR-28. 0BTÓBER2000 68
Sjálfstæðismenn skera
enn í Reykjavík
ENN eru vegaframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu tilefni um-
ræðu á Alþingi. Pað er nánast ár-
viss slagur þegar fjárlög eru kynnt
frá því að Davíð Oddsson 1. þing-
maður Reykjavíkur tók við stjórn-
artaumum að rikisstjórn hans veit-
ist að Reykjavík og nágrenni með
niðurskurðarhnífnum og skeri
vegaféð, sem búið er að samþykkja
á vegaáætlun.
Sturla sparar 400
milljónir í borginni
í haust, þegar fjárlög voru
kynnt í stjórnarflokkunum, spurð-
ist út að fresta ætti vegafram-
ÁstaR.
Jóhannesdóttir
kvæmdum sem næmu 800 milljón-
um króna og kæmi sá niðurskurð-
ur allur niður á höfuðborginni.
Ekki fékkst þetta staðfest við
fyrstu umræðu fjárlaga en í um-
ræðum utan dagskrár í síðustu
viku viðurkenndi samgönguráð-
herra að helmingur niðurskurðar-
ins myndi koma niður á höfuð-
borginni. Ef þetta verður raunin
er ríksstjórn Davíðs Oddssonar
enn einu sinni að níðast á borgar-
búum, sem búa við löngu sprungið
vegakerfl þar sem slysahætta er
mikil og umferðaröyggi í lágmarki
víða.
Það er vitað að vegafram-
kvæmdir hér í þéttbýlinu eru þær
arðbærustu sem um getur. Upp-
lýsingar frá tryggingafélögunum
hafa sýnt það svo ekki verður um
villst. Árekstar verða langoftast
við gatnamót í Reykjavík og þar er
Miklubraut langtjónahæst. Eftir
að brúin yfir gatnamót Reykja-
nesbrautar og Miklubrautar var
tvöfölduð haustið 1997 snarfækk-
aði tjónum þar úr 105 árið 1995 í 8
á síðasta ári. Þetta er talandi
dæmi um hversu miklvægar • þær
framkvæmdir eru sem ríkisstjórn-
in ætlar nú að setja á ís.
Löggæsla í lágmarki
Það er ekki bara að ríkisstjórnin
fresti framkvæmdum í borginni
heldur eru fjárveitingar til lög-
gæslu einnig minnkaðar. Á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu í síðustu viku
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qhmtu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
kom fram að ef fjölgun lögreglu-
manna við umferðareftirlit hefði
verið í samræmi við fjölgun bif-
reiða í borginni á tímabilinu 1980-
2000, eða á undanförnum 20 árum,
ættu stöðugildin að vera 60% fleiri
en þau eru nú. I umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík ættu þá
að vera 64 stöðugildi lögreglu-
manna, 10 lögreglubifreiðar og 24
lögreglubifhjól.
En hvernig er ástandið? Jú,
stöðugildin hjá umferðarlögregl-
unni í Reykjavík eru 24, sem skipt
er í 3 vaktir og eru 6-8 lögreglu-
þjónar á vakt í einu. Deildin hefur
yfir að ráða 2 lögreglubifreiðum og
8 lögreglubifhjólum. Þetta er
allsendis óviðunandi ástand og
ekki að undra að slysum fjölgi
þegar misábyrgir ökumenn þeysa
um göturnar vitandi að löggæsla
er í lágmarki vegna fjárskorts.
Bætum samfélagsþjónustuna
Landspítalinn hefur þurft að fá
Sparnaður
Það er ekki bara að rík-
isstjórnin fresti fram-
kvæmdum í borginni,
segir Asta R. Jóhannes-
dóttir, heldur eru fjár-
veitingar til löggæslu
einnig minnkaðar.
aukafjárveitingar til að geta sinnt
öllum þeim aukna fjölda slasaðra
sem komið hafa þangað eftir um-
ferðarslys.
Nær væri að setja fé í að auka
löggæslu og bæta umferðarmann-
virki til að koma í veg fyrir þær
hörmungar sem umferðarslysin
eru.
Þetta er afleit samfélagsþjón-
usta sem skrifast á ábyrgð íhalds-
ins og tímabært að Sólveig Péturs-
dóttir, dómsmálaráðherra og
þingmaður Reykjavíkur, taki til
hendinni í sínum málaflokki. Það
dugar lítt að halda skrautsýningar
með borðalögðu liði og lofa öllu
fögru þegar efndirnar eru svona.
Samgönguráðherra og
dómsmálaráðherra verða að taka
sig á í málefnum þéttbýlisins. Höf-
uðborgarbúar munu ekki líða að
framkvæmdir og þjónusta við þá
sé sífellt skorin niður.
Höfundur er þingnmdur
Samfylkingarinnar.
nikii
—i
án útborgunar við
▼
lámim laðLáð
©ðfiaitó
▼
fyrsta aíbOTgun
í mars 2001
▼
ver&lækkun
utsa
ts
1^^
i
á notu&um bílum
frá Ingvari Helgasyni hft
og Bílheimum ehf
OPIÐ:
kl. 9-18 vlrka daga
kl. 10-17 laugardaga
BORlíA^BÍUSALAN
Grensásvegi 11 - Sími 588 5300 - www.ih.is - www.bilheimar.is