Skírnir - 01.01.1887, Side 77
ÍTALÍA.
79
jeg aldri Austurríki fylgja. Til slíks hef jeg of mörg árin á
baki». Ráðherrann, sem hefir verið erindreki konungs í Vín,
varði sambandið við keisaraveldin og kvazt ekki bandalag
kunna að binda ef slíkt, sem hjer ræddi um, kæmi ltalíu að
engu haldi. Hafði það fyrir smiðshög í niðurlagi ræðu sinnar:
«þingmaðurinn segist vera of gamall til að fylgja Austurríki,
en jeg er þó eldri», og rjetti um leið upp þann handlegginn,
sem hafði brotnað af skoti i orrustunni við Nóvara 1849.
Allan veturinn var mikið um þref á þinginu, og er Depretis, for-
stöðumanni stjórnarinnar, þótti hennar liðar fara að verða lausir
á velli, tók hann það af að slita því til nýrra kosninga. þær
fóru fram i siðara hluta maimánaðar. Mótstöðumenn stjórnar-
innar, þeir sem flokkum stýra, eru 5 að tölu — Crispi,
Nicotera, Cairoli, Zanardelli og Baccorini — og kallast þvi
«pentarkistar», en þeir eru heldur sundurleitir sín á milli, er
Crispi t. d. vill fylgja keisaraveldunum, Cairoli binda lag við
Frakka — og það hefir þeim Depretis orðið opt til þessa helzt
til bjarga. I rauninni eru þessir menn þar á eitt band
dregnir með þeim Depretisx), er þeir skygnast allir um, hvar
Italíu gefi til veiði, og hvað hún gæti haft fyrir hest sinn, ef
hún hlutaðist til stórtiðinda, en þeim þykir sitt hverjum um
það, er til ábatans skal vinna^ Gagnvart þýzkalandi og Aust-
urríki þykir «pentarkistum» of mikið «gefið fyrir pípuna», og
þeim þykir ekkert áreiðanlegt um liðsinni bandamanna til að
koma Ítalíu á þá ráðastöð i Miðjarðarhafi, sem hún eigi rjett
á til móts við Frakkland. þetta og mart annað — t. d. um
nýlendupólitíkina og leiðangurinn til Rauðahafs — kom fram
i kosningaræðum skörunganna, og Cairoli sagði Itölum vera
lítinn slæg í að gerast löggæzlusveinar nýs stórveldasambands,
sem vel kynni að verða eptirmynd «sambandsins helga» frá
1815 Annars báru þeir Depretis hærra hlut við kosningarnar,
en fylgið á þinginu vildi opt verða þeim heldur stopult, þegar
þrautir hersveitanna við Rauðahaf bárust i umræðurnar, og
*) Fyrrum voru þeir Cairoli samhendir og litu jafnvingjarnlega til
F.rakklands.