Skírnir - 01.12.1905, Blaðsíða 19
Trú og saimanir.
307
stundis, svo að það varð jaí'n-mikið og áður. Og inni í
stofunni, þar sem fólkið var, frammi fyrir því öllu, leyst-
ist hún sundur, eins og vaxbrúða við glaðan eld. Fyrst
þurkaðist andlitsfallið út. Augun sukku inn i augnatóft-
irnar, nefið hvarf, ennið virtist hníga aftur á bak inn í
höfuðið. Þá hurfu útlimirnir og líkaminn hrundi eins og
varða. Höfuðið eitt sást því næst eftir á gólfdúknum.
Að lokum sást ekki annað en nokkuð af hvítum slæðum,
unz þær hurfu líka, eins og þeirn hefði verið kipt burt
ofan frá. Prófessor Crookes mældi Katie oft; hún var
ekki jafn-há öll kvöldin, en ávalt mikið hærri en Florence
Cook. Hann taldi æðaslögin og hjartaslögin og hlustaði
lungun í þeim báðum. Þeim var mjög misjafnt farið um
þetta alt. Og hann tók fjölda af ljósmyndum af Katie.
A sumum þeirra sést Florence Cook hjá henni.
Þetta er ofurlítið ágrip af því, er bar fyrir William
CrooKes, heimilsfólk hans og gesti árin 1873—74. Þessi
fyrirbrigði á himili hans eru ekki einstæð. Vitni er borið
um mörg sams konar fyrirbrigði, áður en Florence Cook
kom til Crookes. Og mikið á að hafa gerst af þeim síðan.
Þau gerast mörg víðsvegar urn heiminn á hverju ári. Nú
síðast smnarið 1905 hafa verið mikil brögð að þeim, bæði
i Norðurálfu og Vesturheimi, eftir frásögn sjónarvotta, sem
hefir fundist hliðum himnaríkis vera lokið upp fyrir sér svo
rækilega, að þeim verði aldrei lokað framar. Og þessi
holdtekju-fyrirbrigði í heild sinni eru ekki heldur einstæð.
Þau standa í sambandi við ógrynnin öll af öðrum fyrir-
brigðum, sem eru með öðru móti, en benda jafn-skýrt út
yfir gröf og dauða.
Margar tilraunir hafa verið gerðar til skýringar á
þessum fyrirbrigðum í því skyni að hnekkja sönnunargildi
þeirra. Sumir hafa gizkað á, að þessi 15 ára skólastúlka,
sem Crookes tók heim í liús sitt, hafi leikið allan þennan
leik. Öðrum þykir það ekki sem sennilegast, þar sem
fólkið sá þær báðar í einu og ljósmynd náðist af þeim
báðum á sörnu plötunni. Sumir halda að Katie King hafi
verið einhver vinstúlka Florence Cook, sem svona hafi
20*