Skírnir - 01.12.1905, Blaðsíða 13
Trú og sannanir.
301
ar, sem sveipað hefir verið utan um líkið. Þegar lærisvein-
arnir eru farnir heim til sín, stendur María eftir lijá gröf-
inni og gægist inn í hana. Þá sér hún tvo hvítklædda
engla, annan til höfða, hinn til fóta, þar sem Jesús hafði
legið. Rétt á eftir verður henni litið aftur fyrir sig, sér
þá Jesúm standa þar, og heldur fyrst, að það sé gras-
garðsvörðurinn, en þekkir hann svo, þegar hann fer að
yrða á hana. Að kvöldi hins sama dags kemur hann að
luktum dyrum inn til lærisveina sinna og sýnir þeim
hendur sínar og síðu. Tómas er ekki viðstaddur og vé-
fengir þetta, þegar hinir lærisveinarnir fara að segja hon-
um frá því. Jesús birtist þeim þá aftur á sama hátt
eftir átta daga og lætur Tómas skoða vandlega hendur
sinar og siðu. Auk þess segir Jóhannesar guðspjall, að
hann hafi gert mörg önnur teikn í augsýn lærisveina
sinna, þau, er ekki séu rituð í guðspjallinu, og eftir sam-
bandinu virðist svo, sem hann hafi gert þau í Jerúsalem,
í sama skiftið, sem hann lét Tómas skoða sig. Að lokum
segir Jóhannesar guðspjall frá því, að hann hafi birzt sjö
lærisveinum sínum í Galíleu, við Tíberíasvatn, og tekur
það fram berum orðum, að það hafi verið í þriðja sinni,
sem hann birtist lærisveinum sínum eftir upprisuna.
Þá er loks vitnisburður Páls postula í fyrra Korintu-
bréfinu. Hann er alt annan veg en frásagnir guðspjall-
anna. Eftir hans ummælum virðist svo, sem Kefas (Pét-
ur) eigi að hafa séð Jesúm eftir upprisuna fyrstur manna,
þar á eftir »þeir tólf«; þá 500 manns, allir í einu; þá
Jakob; þá postularnir allir. Páll fer auðsjáanlega eftir
alt öðrum upprisu-frásögnum en höfundar guðspjallanna.
Þessi eru sönnunargögnin, sem kristin kirkja hefir
fram að færa gegn þeim mönnum, sem ekki trúa upprisu
Krists. Þeir taka þau ekki gild. Svo sundurleitar og
lauslegar frásagnir um jafn-einstæðan viðburð, sem á að
hafa gerst fyrir nær 20 öldum, taka þeir ekki trúanlegan.
Þeir benda á það, að við þennan viðburð hafi engum ná-
Ivæmum athugasemdum verið beitt, og engin rannsókn
:skarpskygnra og óhlutdrægra manna hafi farið fram um