Skírnir - 01.12.1905, Qupperneq 17
Trú og sannanir.
305
samlegt, að menn véfengi þá viðburði, sem eru alveg ein-
stæðir í reynslu mannkynsins, ef ekki er unt að færa
rikar sannanir fyrir þeim. Nú er svo ástatt um aðalvið-
burð kristninnar, upprisu Krists frá dauðum, eins og áður
hefir verið vikið að, að sannanirnar fyrir honum eru ekki
svo ríkar, að þær fullnægi efagjörnum mönnum, af því
að viðburðurinn er talinn einstæður, ekki að eins af þeim
sem rengja hann, heldur og af kristnum mönnum lang-
fiestum. Hér veltur sannfæringin áreiðanlega fyrir mörg-
um, mörgum miljónum manna um allan siðaðan heim á
þessu, hvort upprisa Krists er í raun og veru einstæður
viðburður, eða hvort færa má órækar sannanir fyrir því,
að sams konar viðburðir séu að gerast á vorum dögum.
Fáist engar sannanir, er styðji trúna á upprisu Krists, eru
óneitanlega mjög miklar horfur á því, að sú trú líði
undir lok, áður en afar-langt líður, eftir þeirri stefnu,
sem mannsandinn hefir tekið á síðari tímum. Reynsluvís-
indin virðast vera að gagntaka hann svo, að það verður
innan skamms gagnstætt eðli hans að byggja sínar æðstu
og dýrmætustu vonir á ósönnuðu máli. Og trúarþörfin
leitar sér þá fullnægju á nýjum brautum. En fari svo,
að órækar sannanir fáist fyrir því, að nákvæmlega sams
konar viðburðir gerist enn eins og þeir, sem skýrt er frá
síðast í guðspjöllunum -— að andar framliðinna manna
geti enn tekið á sig gerfi, sem ekki verður greint frá
mannlegum líkama — þá fer að verða í meira lagi óað-
gengilegt fyrir skynsama og gætna menn að afneita þunga-
miðju-viðburði kristins heims. Þá fer ekki að verða þörf
á jafn-ríkum og jafn-nákvæmum sönnunum fyrir upprisu
Krists eins og annars.
Þessar sannanir fullyrða spíritistar, að þeir hafi fund-
ið. Ekki fáfróðir, trúaræstir alþýðumenn á útkjálka menn-
ingarheimsins, heldur menn af öllum stéttum, en einkum
vel mentaðir menn, víðsvegar um heiminn, og þar á meðal
nokkurir af ágætustu vísindamönnum í sjálfum menningar-
miðdeplum veraldarinnar. Þeir segjast hafa horft á anda
framliðinna manna taka á sig mannlegan líkama. Það
20