Skírnir - 01.08.1906, Page 49
Skirnir.
Um listir.
241
umst sjálfir með eins og aðvífandi gestir, sem ganga í
dansinn. Og þannig vekja þeir inst í brjóstum vorum
hræringar, sem biðu eftir því að þeim væri komið af stað.
— Hvort heldur því er málaralist, myndasmíð, skáld-
skapur eða sönglist, þá er markmið listarinnar það eitt,
að bægja á braut hinum handhægu táknum, hversdags-
blæjunni, sem vaninn og félagslífið hefir löghelgað, í stuttu
máli öllu því, er hylur oss veruleikann sýn, svo að vér
getum séð veruleikann sjálfan augliti til auglitis. Af mis-
skilningi á þessu atriði er sprottin deilan milli hlutsjónar-
stefnunnar og hugsjónarstefnunnar í listunum. Listin er
sannlega ekki annað en það að sjá veruleikann augliti
til auglitis. En þessi hreina skynjan hefir í sér fólgið
brot gegn hagkvæmum venjum, meðfædda óhlutdrægni,
sprotna af því hvernig skvnjun eða vitundarlífi er varið,
og loks eins konar ólíkamlegan lífblæ, sem jafnan hefir
kallað verið hugsjónarstefna. Fyrir því mætti svo að
orði kveða, án þess að bregða fyrir sig nokkrum orðaleik,
að hlutsjón væri í verkinu fólgin, þegar hugsjón ríkti í
sálunni, og að það væri hugsjónin ein, sem kæmi oss
aftur í samband við hlutina sjálfa.
Leiklistin er ekki undanskilin þessu lögmáli. Það
sem sjónleikir leita að og vilja leiða í ijós er djúpur veru-
leiki, sem oss er hulinn, oft sjálfum oss til góðs, svo sem
nauðsvnjum lífsins er varið. Hver er sá veruleiki? Hverjar
eru þær nauðsynjar? Allur skáldskapur lætur í ljósi eitt-
hvert sálarástand. En sumt í þessu sálarástandi á upptök
sín í sambandi nranns við nrann. Og það eru sterkustu
tilfinningarnar og áköfustu. Eins og rafmagnið myndast
og safnast á milli tveggja plata rafmagnshlöðunnar, svo
gneistar geta sindrað þaðan, eins framleiðist af návist
manna einni saman sterkur aðdráttur eða hrindingar,
gagngjört brot á jafnvæginu og loks þessi andans raf-
mögnun, sem ástríðurnar eru í fólgnar. Ef mennirnir
gæfu sig tilhneigingum sínum á vald, ef þeir hefðu hvorki
borgaraleg né siðferðisleg lög, þá væru þessi umbrot sterkra
.ástríða hversdagsviðburðir. En það er gagnlegt, að þessum
16