Skírnir - 01.08.1906, Síða 57
Skírnir.
íslenzk höfuðból.
ii.
Hólar i Hjaltadal.
Hjaltadalur liggur í suðaustur upp frá botni Skaga-
fjarðar. Aður en sjálfur dalurinn hefst er flatlendi nokk-
urt á milli hans og fjarðarins. Hefir það til forna verið
skógi vaxið og er enn kallað Brimnesskógur. Sé horft
inn í dalinn úr Brimnesskógi blasir við manni fögur fjalls-
hlíð inni í dalrmm, það er Hólabyrða, áður kölluð Rafta-
hlíð. Undir henni norðvestan til eru Hólar. Eftir daln-
um rennur á, sem heitir Hjaltadalsá, þar til í hana renn-
ur önnur á sem kemur að norðan, úr Kolbeinsdal, og heitir
áin eftir það Kolka. Aður var hún nefnd Kolbeinsá, og
ósinn Kolbeinsárós. Eins og nafnið ber með sér stendur
bærinn á Hólurn hátt, og er þaðan víðsýni nokkuð ofan
dalinn og fram dalinn, sem þá beygir mjög til suðurs.
Hólarnir, sem staðurinn stendur á, segja menn, að muni
vera framhlaup úr norðvesturhorni Byrðunnar. Alt er
túnið grætt upp úr þessum melhólum. Fyrir neðan túnið
eru engjar fra-rn með ánni, og er eigi all-lítið svæði milli
fjallsins og árinnar. Hafa engjarnar fyrrum verið blautar,
en eru nú að miklum mun þurkaðar upp siðan búnaðar-
skólinn var stofnaður á Hólum; þó eru harðlendir bakkar
frarn með ánni. I allgóðu ári gefur túnið af sér nú um
1000 hesta af töðu (60 dagsl. að stærð). Af engjum fást
um 2000 hestar af úthevi.