Skírnir - 01.08.1906, Side 63
Skírnir.
Hólar i Hjaltadal og Hólabiskupsdæmi.
25&
efla eigi að eins vald kirkjunnar inn á við í hjörtum
xnannanna, heldur einnig út á við, að gera hana óháðar
stjálfstæða stofnun, sem væi'i að öllu leyti drotning í sínu
ríki, að losa kirkjuna við öll áhrif og afskifti veraldlega
valdsins, og koma í verklega framkvæmd þeirri setningu,.
að þar sem guðs lög og manna greindi á, þar Skyldu guðs
lög ráða. Þessi bardagi var harður og langvinnur, og
stóð í rauninni alla þá tíð, sem kaþólska biskupsdæmið
var á Hólum. Jón biskup ögmundsson hafði undirbúið
hugi og hjörtu mannanna, hneigt þau í kirkjulega og trú-
arlega átt, vakið hjá mönnum lotningu fyrir kirkjunni,.
sem guðsríki á jörðunni, hann hafði komið mönnum í skiln-
ing um, að kirkjan, o: Hólakirkja, væri andleg móðir í
sínu umdæmi, og biskupinn andlegur faðir, sem bæri lotn-
ing og virðing bai’nanna sinna, en lengra hafði hann ekki
farið, og lengra hefir hann sjálfsagt séð að ekki var ger-
legt að fara að svo komnu. Hann geymdi eftirkomend-
um sínum á Hólastól að uppskera frekar af iðju sinni, að
gera Hólabiskupsdæmi glæsilegt og sjálfstætt biskupsriki,
þar sem allir í umdæminu, bæði lærðir og leikir, lytu
boði og banni biskupsins á Hólum.
Baráttan rnilli lærðra og leikra í Hólabiskupsdæmi
byrjaði tæpum hundrað árum eftir að biskupsstóll var
reistur á Hólurn. Það er Giuðmundur biskup Arason, sem
þá kemur öllu í uppnám. Hann er einn af þessurn afar-
einkennilegu miðaldaklerkum, svo gagntekinn af þeim
kii’kjulegu hugsjónum, sem þá var mest haldið að mönn-
um, að þær gefa honum engan frið og enga ró. Hann
flakkar sveit úr sveit, bæ frá bæ, er undarlegur í háttum
sínum, berst lítið á, fastar og biður, syngur yfir sjúkum
mönnurn, vígir vatn, sem síðan er haft til heilsubótar,
hann lætur engan aumingja synjandi frá sér íara. Fá-
tæklingarnir flykkjast að honum og hann hefir heilan
herskara af þeim með sér á öllu sínu ferðalagi og heima
á stólnum. Hann er aldrei við konu kendur, börnin hansr
vinir hans og vandamenn eru fátæklingarnir; hans mesta
yndi er að gefa, hann treystir því fullkomlega, að María