Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1906, Side 64

Skírnir - 01.08.1906, Side 64
256 Islenzk höfuðból. Skirnir. guðsmóðir muni gefa sér aftur, endurgjalda fyrir þá, sem ekki gátu endurgoldið sjálfir. En hann var líka trúr þjónn kirkju sinnar. Að eðlis- fari er hann ráðríkur og ósveigjanlegur — þrár fram úr hófi; hann vill því ekki víkja um hársbreidd frá rétti kirkjunnar, þeim rétti, sem kirkjan hafði náð í öðrum löndum, þar sem rómversk kaþólsk trú var drotnandi, en það var langur vegur frá, að kirkjan hefði náð þeim réttindum hér á landi. Hann setti markið hátt: öll kirkjuleg mál- efni aðskilin frá veraldlegum málum, og veraldlegir höfð- ingjar ekkert um þau að fjalla. En hann náði ekki þessu takmarki, og þess var heldur ekki að vænta, ekki fellur tré við fyrsta högg, og i rauninni var sigur kirkjunnar sama sem fall hins íslenzka þjóðveldis. Með þessum deil- um hófst sorgarleikurinn, sem lyktaði á alþingi 1262. — Gfuðmundur biskup hafði ekkert upp úr þessu, nema stríð og amstur. Hann vantaði kænsku höggormsins, var of mikill förumunkur en of lítill biskup eða stjórnfræðingur, og sízt af öllu fjárgæzlumaður, en vinfastur var hann og tryggur, og vinir hans vildu alt leggja í sölurnar fyrir hann. Hólastóll hefir sjálfsagt ekki blómgast í efnalegu tilliti á hans dögum, enda sat hann ekki á Hólum nema endur og eins. En eftir að landið komst undir konung áttu biskup- arnir miklu hægra aðstöðu að auka kirkjuvaldið; þá var hið forna vald alveg úr sögunni, sem var ósamrýmanlegt kirkjuvaldinu og bygt á heiðnum grundvelli, en konungs- valdið þar á móti komið í þess stað með eins konar kirkju- legum blæ og helgað og blessað af kirkjunni. Kirkjan siglir því miklu hærri vind eftir að landið er komið undir krúnuna en áður, þá er valdið hjá henni, þá er ekki til neins að bjóða henni byrgin úr því, þá er það fast- ákveðið bæði að lögum og i framkvæmd, að þar sem guðs lög og manna greini á, þar skulu guðs lög ráða. Nú var þá valdið komið í hendur biskupanna. Bisk- upinn var hver í sínu umdæmi álitinn æðsti maðurinn,

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.