Skírnir - 01.08.1906, Blaðsíða 94
286
Erlend tíðindi.
Skírnir.
landsins, er laun hafði þegið áður úr ríkissjóði, meðan lifði. Þeirra
hlunninda allra missir kirkjan, ef eigi játast hún undir skilnaðar-
lögin fyrir 7. des. þ. á. Fyrir þá þrákelkni páfa er nú að rísa upp
á Frakklandi fjölmennur flokkur leikmanna, er hafa vill samtök að
því, að sœtta sig við þau lög, hvað sem páfi segir.
Það leiðir eitt af skilnaðarlöguuum, að kirkjuleg sunnudagshelgi
er úr lögum numin. Þó voru í þess stað sett lög um almennan
hvíldardag einn í viku. Stækir andstæðingar kirkjunnar vildu ekki
láta hann bera upp á sunnudag. En það varð þó úr.
Þ/zkaland. Þar þróast enn sem fyr valdstjórnareinræði og
afturhald, einkum í norðurhálfum ríkisins. Lögþingi Prússa t. d.
samþykti í sumar alþ/ðuskólalög í þveröfuga átt við hin ensku —
þau draga mjög úr afskiftum sveitarstjórna af barnauppfræðslu og
fela hana að mestu á vald kennil/ðsins. Þar er bannað að lesa rit
Hinriks Ibsens í kennaraskólum.
Mikið bryddir og á fjárdrætti og mútum með þyzkum em-
bættal/ð. Mest brögð eru að því sögð í n/lendumálastjórninni í
Berlín. Þar er ausið út ógrynni fjár til að koma upp þ/zkum n/-
lendum í öðrum heimsálfum og styðja þær. En allmikið af þvi fé
er mælt að iendi í vösum embættismanna þeirra, er þau mál hafa
með höndum. Stórverzlanir og verksmiðjur múta þeim til að kaupa
hjá sór með ránverði það er þeir þarfnast handa nylendunum.
Það komst upp í sumar um einn ráðgjafa keisarans, Podbielski, að
hann var aðalhluthafi í einni slíkri stórverzlun.
Baudaríkin í N.-Atneríku. Þar hefir mikið gengið á í
sumar um uppljóstun margs kyns fjárdráttaróknytta og /mislegrar
spillingar, er oft fylgir hóflausu auðsafni. Roosevelt forseti gengur
ódeigur á hólm við þann dreka, en vinnur minna á en skyldi, með
því að auðk/fingarnir ráða helzti miklu á þingi.
Bandamenn leystu eyjarskeggja á Kuba úr langri ánauð Spán-
verja fyrir fám árum og gerðu eyna að óháðu þjóðveldi í sínu
verndarskjóli. Þar varð uppvíst í sumar um samsæri gegn þjóð-
veldisforsetanum, Palma, og fylgdi uppreisn, er Bandamenn hafa
orðið að hlutast til um og eigi er enn séð fyrir enda á.
D a n m ö r k. Þar beið stjórnin töluverðan ósigur í landsþingis-
kosningum 21. sept. og er nú þar í greinilegum minni hluta síns liðs.
— Anuar helztur atburður þar á sumrinu var heimboð íslenzkra
alþingismana, er stóð 12 daga.