Gefn - 01.07.1871, Page 25

Gefn - 01.07.1871, Page 25
27 þá sé Íslendíngar ekki höfundar Völsúngasögu eða Gaungu- hrólfssögu eða annara sagna, af því þær hafi til forna geng- ið í Noregi, þá mótmæli eg því og minni á það að það er ætíð taiið rithöfunda-verk, en ekki afskrifara-verk, að færa sögur í letur; því ekki finnur neinn sagnaritari upp á ver- aldarsögunni, sem hann færir í letur, og ekki fann Ásbiörn- sen upp norsku æfintýrin né heldur Jakob og Vilhjálmur Grimm en þýsku, og allir slíkir merin eru álitnir sem höf- undar og njóta þess heiðurs sem höfundum heyrir, því af þeirra kröptum hafa sögurnar fengið festu og mynd). Eins og steinvopnin og slíkir hlutir eru merkilegur arf- ur frá fornöldunum og geymdur í jörðunni um margar þús- undir ára til þess að bera vitni um mannkynið fyrir eptir- komendunum, sem lifa í ljósi þekkíngar og skoðunar: eins eru fornsögurnar ekki síður merkilegar, því þær gera það ólíkamlega og andlega eilíft, þær hafa goymt þau orð sem hafa verið töluð fyrir laungu, og sem ekkert forngripasafn segir frá; þjóðir, sem menn segja að sé fyrir laungu dauðar og undir lok liðnar, lifa þannig í málum sínum — þó ekki hafi geymst af þeim nema eitt einasta nat'n: þetta nafn hljóm- aði einusinni á túngu þeirra og leið yfir tímann, yfir dauð- ann oggrafirnar, og deyr aldrei: þetta er ódauðlegleiki þjóð- anna, sigurhrós sögunnar og heiður rithöfundanna og skáld- anna. pað er líklegt að sögur og kvæði hafi geymt mörg orð úr málum steinaldarinnar og eiraldarinnar, sem voru töluð laungu áður en mönnum datt nokkur leturgjörð í hug, þó nú aldrei nema þessi orð sé afbökuð eða breytt og löguð eptir því máli sem sögurnar eru á ritaðar og sem án efa var annað en fornmálin þar á undan. Aðgreiníngin á milli aldanna mun aldrei og hvergi hafa orðið allt í einu eða á einni nóttu eins og vér tölum um aldamót, heldur á lengri tíma, og þjóðirnar meinguðust þá ætíð nokkuð. Nilsson segir1), að ') Skand. Ur-invánare, 2. uppl. p. 44. 53-57.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.