Gefn - 01.07.1871, Blaðsíða 67
69
hafi verið; en það er auðsjáanlega sama hugmynd og Grotti,
sem mól gull1); Sampo var festur með þrem rótum (eins
og askur Yggdrasils) með níu lásum og slagbröndum (sbr.
njarðlásar níu í Fjölsvm. 27) á níu faðma djúpi, og hug-
myndin um hann er hvað eptir annað undin saman við eir;
eg held að (eir)örvar-oddarnir hjá Herodotus svari til korn-
fræjanna eða axanna í Sampo, og sagan annað hvort sé af-
bökuð, eða hafi verið til í fieiri myndum. Síðan fóru þeir
Wainamoinen Ilmarinen og Lemminkainen og ræntu Sampo
aptur úr Pohjola, og þá datt hann í sjóinn og brotnaði í
mola, og síðan segja Finnar að evmd sé í Lapplandi. Ca-
strén 2j heldur að nafnið sé komið austan úr Asíu, því Món-
golar kalli elstu Búdda-kyrkju »Sampo«, og annars segir
hann það hljóði á Tíbeta-máli Sang-fu og þýði lind bless-
unar eða gæðalind; eg minni á undratré eða Mímameið
Inda og Tíbeta, sem nefnist Zampu, og nafn Búdda Saman
og Sampu3); og Djambu, Jambu er goðafæða hjá Indum,
og þaraf kalla þeir Indíaland Djambu-Dvipa eða Jambu-
dvipa, hið sægirta aldin guðanna. Eg held þetta sé líka
sama orðið og það nafn sem aðalfljótið í Tíbet heitir og er
margvíslega ritað á kortum og bókum: Tsanpu, Tsampu,
Dzang-bo-tschu, Dzang-Bot-Tsju, Yaru-zzang-bo-tsiu; þetta
Tsanpu Tsampu Dzangbo DzangBot zzangbo svarar til Sang-
fu og Sampo4); þessari á er ýmist blandað saman við Bra-
') Sama hugmynd, en með öðru móti, er það þegar Otus og Efi-
altes, Aloeussynir, létu Ares í eirkelil: Ares er styrjöldin og
þeir eru kraptar og auður jarðarinnar, akuryrkjan, og „só korn-
frjóa jörð“ hafði alið þá og magnað; þar sigrar auðurinn styr-
jöldina og veitir frið og sælu. (Hom. Od. XI. 305. II. Y. 385).
J) Finsk Mythol. 270. 262—63.
3) N. M. Petersen, Nord. Mythol. 131. F. M. Eddalæren II. 173.
631. 632. cf. Lex. mythol. 867.
4) Kambyses hét fljót á Indíalandi; svo hét og einn af Gangár-
ósum (Ptol.).