Gefn - 01.07.1871, Síða 27
29
Ritaðar upplýsíngar um elstu tíma á Norðurlöndum
höfum vér raunar í kvæðumvorum og sögum, en þó höfum
vér aðrar bendíngar sem eru enn eldri og sem eru enn nær
og gánga enn lengra, sem eru sagðar, kveðnar og ritaðar
laungu áður en menn voru komnir svo lángt á Norðurlönd-
um, að þvi er vér fremst vitum; það eru sögur og kvæði
Grikkja og Rómverja, og vér skulum því fyrst skoða þau
nokkuð, án þess mér þó detti í hug að tæma alla þá rit-
höfunda, því hvorki hef eg lesið allar bækur, né heldur hef
eg hér rúm til þess að semja svo lánga ritgjörð; en nokk-
uð af því merkilegasta get eg sýnt, og það því fremur,
sem engin slík forn fræði hafa fyrr verið sýnd Islendíngum
á þeirra túngu.
Vér getum álitið að menntan Grikkja hafi staðið í
hlóma um þúsund ár, allt frá Hómers öld og fram að Krists
dögum; en það var ekki fyrr en laungu síðar að hún varð
andlegur grundvöllur allra Evrópu-þjóða, því á meðan Grikkir
lifðu í þessu guðdómlega ljósi, sem skein svo skært yfir þá að af
því leggur óslökkvanda ljóma yfir allar aldir, þá fóru þeir mjög
lítið út fyrir Miðjarðarhafs-löndin, og sjálft Grikkland og
litla Asía voru aðalaðsetur meuntunarinnar. Vér vitum raun-
ar af öðrum menntuðum fornaldar-þjóðum að segja en
Grikkjum: svo voru til að mynda Túrdúlar og Túrdetanar
á Spáni, sem Strabon segir að sé vitrastir eða menntaðastir
allra íbera og hafi »grammatík« og ýms forn fræði og kvæði
og lög sexþúsund orða1), og á fleiri stöðum var mikil forn-
aldar-menntun, en engiu þjóð komst í því eins lángt eða
hafði jafn mikil áhrií og Grikkir. Einstakir menn — vér getum
nefnthér svo semdæmi: Pythagoras, Herodotus, Platon, Stra-
bon — ferðuðust erlendis til þess að kanna siði þjóðanna og
nema forn fræði, því öll fornöld á sér aðra fornöld; en hvað lær-
dóm snerti,þá voru Egiptar, Kaldear og Indar þær einustuþjóðir
) þ. e. vísu-orða, eða versa, eða þess konar; aðrir lesa értöv,
ára, sexþúsund ára gömul kvæði, Strabon 139 C.