Gefn - 01.07.1871, Page 77

Gefn - 01.07.1871, Page 77
79 Eptir þennan útúrdúr skal jeg nú halda norðureptir aptur. það getur enginn eii verið á að Finnar haíi bygt Noreg og Svíaríki á undan Norðmönnum, eða að minnsta kosti komið þángað, og eg held að þeir hafi gefið Noregi nafn, en það sé ekki af »norrænni« rót. (Nerigon kemur fyrir hjá Pliníusi, og eg þekki ekkert nafn sem fyrr minnir á Noreg, en það getur líka minnt á Neríki; þetta gerir ann- ars lítið eða ekkert til hér, því það verður ekkert bygt á því. Mullenhoff [D. A. I. 387 etc.] vill heldur lesa »Ber- rice« : það kemur öldúngis niður í sama stað, því landafræði Pliníusar og Forngrikkja yfir höfuð er svo rugluð í norðrinu að það er ómögulegt að finna neitt óyggjandi í því efni. Vér gerum ágitskanir af orðum og nafnalíkíngum; og því getur »Nerigon« ekki verið eins sennilegur lestrarmáti eins og »Berrice« ? Eg sé ekkert á móti því.) — Fyrst held eg Noregs nafn finnist hér á Norðurlöndum á rúnasteininum yfir Gormi gamla á Jalángursheiði: þar heitir það NURVIAK *). í Eddukviðunum er það aldrei nefnt. Hvort heldur sem nafnið Nor eða Norr er maunsnafn eða hugmyndarnafn, þá er það ekki norrænt, og ekkert sannar að það sé endilega skylt »norðri«; eg vil heldur álíta það finnskt eða austrænt og gefið af enum eldgömlu Finnum sem fóru austan að og suður eptir Noregi einmitt eins og »Fundinn Noregr« segir; það er engin ástæða til að efast um söguna. Almennast er álitið að Noregr sé = Norvegr (o: Nors vegr), eða þá þekti ekki fyrr en eptir að eg hafði ritað þetta. þar stendur (p. 23): ... „hat Jordanis seiner Nation eigentlich keine Ehre gemacht. Von Hause aus talentlos fflr eine derartige Arbeit, ohne allen inneren Beruf dazu, ohne Urtheil und jeden kritischen Sinn . . . Selten hat ein Schriftsteller unselbstán- diger gearbeitet . . . Die meisten Quellen, welche er nennt, hat er selbst nicht gelesen“ . . . ') Eða Nurviag. Thorsen heldur að Sveinn Tjúguskegg hafi látið reisa og rista steininn, D. Runem. I. 133. sb. 30—32.

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.