Gefn - 01.07.1871, Side 89

Gefn - 01.07.1871, Side 89
91 J)ó þær kynni að hafa deilst í ýmsar minni þjóðir — líklega allar saman finnskar eða túranskar. — Á bls. 57 og annars víðar hef eg sýnt fyrstu upprunamerkíngu nokkurra orða. Jón forkelsson hefir komist inn í sama efni þar sem hann hefir talað um »að lýsa yfir«, og sagt öldúngis rétt að það merki að gera ljóst eða bjart yfir einhverju. Einmitt af þessu hlýtur »yfir« að vera praepositio, og þetta orð lýsir hér svo bjartlega yfir sjálfu sér að enginn getur misskilið það nema hann sé bæði smekklaus og ruglaður. J>ess vegna er útskýríng Jóns er ekki »fátækleg«, heldur er hún þvert á móti öldúngis rétt og samhljóða vísindalegri skoðan, sem er vakin og efld af Jakobi Grimm, Bopp, Pott, Kuhn, Curtius, Max Míiller og mörgum fleirum, nefnilega að sér hvert orð hafi upprunalega líkamlega merkíngu, eins og eg hef tekið fram á bls. 22. En það kalla eg heldur »fátæklegt« að þekkja engu framfarir vísindanna, heldur koma med skoð- anir sem fyrir laungu er búið að hrinda, eins og þá að menn »hugsi« með sjáífum sér hvaða merkíngar mönnum eigi að þóknast að leggja í orðin, eins og menn búi sjálfir málin til vísvitandi. þar sem eg á bls. 74—76 hef talað um samgaungu- leysi á milli Gota og Norðurlanda þjóða, þá meina eg ekki þar með, að málin ekki sé skyld; en samgaungur manna á milli eru ekkert skilyrði fyrir skyldleika málanna, heldur það að þau sé runnin út frá sömu rót — þau þurfa aldrei að koma saman eptir það og geta verið allt eins skyld engu að síður.

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.