Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 14
14
heldr vera, enn að hið forna sé svo mjög hrunið inn í tóttina. þvíað
gafihlað þetta sýnist allgreinilegt og grjótið í því ofar i jörðu enn
í hinu. Eg hefi haft nokkuð aðra aðferð við gröftinn á þessari búð,
enn við búðina í þingvallartúni, nefnilega við hliðveggi tóttarinnar,
þviað eg hefi þar látið taka allan jarðveg ofan af allri þykt vegg-
janna, eftir því sem næst verðr komizt ummáli þeirra og þykt,
þvíað hin aðferðin hefði að áliti mínu átt hér miðr við, þar eð
grjótið liggr hér miklu óreglulegar, og myndar ekki eins ákveðna
hleðslu sem í hinni búðinni, enda þótt það sé fullljóst, að þetta sé
hinir upprunalegu veggir. Við gaflhlaðið hefi eg þar á móti farið
sem næst hinni fyrri aðferðinni, grafið ræsi að utan og innanverðu
við hleðsluna, enn látið miðbikið standa óhaggað. Ur yztu hleðslu
úr norðrgaflhlaðinu hafa auðsjáanlega verið teknir steinar, líklega
til að byggja upp hið innra gaflhlað; enn þó stendr eftir ljós vottr
um hleðslu í hinu forna upprunalega gaflhlaði. Dyr eru á eystra
hliðvegg, þeim er snýr að ánni, nær nyrðra enda1. Lengd búðar-
innarinnar 86 fet, og breidd hennar að meðaltali 26 fet, nefnilega
25 fet mjóst og 27 fet breiðast.
Mánudaginn 7. júní hafði eg einn mann að ljúka gjörr við
gröftinn á Njálsbúð, og var honum lokið kl. 6. e. m. f>á lét eg
byrja á hleðslunni eða mannvirkinu á gjábakkanum lægra norðr
frá Snorrabúð, þ. e. á þeim stað, sem Dr. Guðbrandr Vigfússon
og Dr, Kaalund ætla Lögberg verið hafa, og lét eg rannsaka þann
stað mjög nákvæmlega, sem nú skal skýrt frá.
priðjudaginn 8. júní kl. 7 f. m. byrjaði eg aftr gröftinn á þess-
um síðast greinda stað; hafði eg þá þrjá duglega menn að vinnu,
og gekk þá verkið vel fram. Hleðsla þessi eða mannvirki á gjá-
barminum er 57 fet frá brún gjábarmsins að neðstu hleðslu mann-
virkisins í stefnu beint niðr að ánni. í gagnstœða átt mælt, nefni-
lega samhliða með gjábarminum upp við sjálfan gjábarminn (mælt
á yztu hleðslur) 59 fet, enn neðar eftir sömu stefnu um mitt mann-
virkið (samhliða með efri línunni) 67 fet. Brúnin eða bergið á gjá-
barminum er 8 álnir á hæð ofan í botninn á Almannagjá, sunnan
til undan hleðslunni í króknum, þar sem klettrinn er sprunginn frá
(sbr. ,,Alþingisstaðinn“). Enn ofan af brún gjábarmsins þvert yfir
miðja hleðsluna og niðr eftir berghallanum og niðr á jafnsléttu eða
að búðartóttunum, er víst 25 faðmar; enn þó skal geta þess. að
mál þetta er eigi fullkomlega nákvæmt, þar eð það var eitt af því,
er eg átti eftir að athuga betr á f>ingvelli í sumar, þegar eg var
þar, enn nærri mun þetta mál samt láta.
I) Eg skal geta þess hér að gamni mínu, að eg setti stein nokkuð stóran við miðjan
hliðvegg búðarinnar innanverðan, þar sem öndvegið hefir hlotið að vera og gamli
Njáll hefir setið, sé það rétt, að þetta sé hans búð.