Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Qupperneq 35

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Qupperneq 35
35 staðinn, og geta menn þar af gjört sér þetta ljóst. J>að er þessi síðastnefndi vegr austan úr hrauninu, sem Njálssaga talar um bl. 732—3, og eldri útgáfan eins, sem þeir Ásgrímr Elliðagrímsson og Gissur riðu á þingið með flokk sinn í brennumálunum; orð Njálssögu eiga hér svo mæta vel við, að lítt verðr um það efazt, að Byrgisbúð' hafi verið þar austr á hraunrimanum, sem eg hefi sett hana á Alþingisstaðinn; þeir Ásgrímr og Gissur hafa fylkt liði sínu, þegar er þeir kómu austr úr hrauninu upp í Prestakrók, sem nú er kallaðr og eg nefndi áðr; þá blasti við fylking þeirra Flosa á hraunrimanum eða þar nálægt virkisgarðinum, enn þegar þeir Ásgrímr hafa riðið niðr Völluna þar fram hjá, þá hefir verið að eins skamt á millum flokkanna, á að gizka 50—60 faðmar eða minna. Njálssaga segir: „Riðu þeir (Ásgrímr) þááVöllu hina efri okfylktu þar öllu liði sínu“. ' Um Flosa segir, er hann sá fylking hinna: „Flosi ok menn hans hljópu þátilvápna allir, ok var þá við sjálft, at þeir myndi Iberjast, enn þeir Ásgrimr ok þeirra sveit gerðist ekki til þess, ok riðu til búða sinna“. Eg get eigi betr séð, enn þetta verði alt eðlilegt. Enn nú skulum vér sjá, hvernig fer, ef vér setjum Byrgis- búðáLögberg hið foma, einsog þeir Guðbrandr og Kálundgjöra, og nefnt er hér að framan. Nú liggr vegrinn niðr á Völluna neðri niðr hjá Köstulunum vestan til og niðr hjá, þar sem Lögréttan hin forna hefir verið, og yfir hólmana og svo vestr yfir Oxará. Eg get ekki séð neitt á móti því, sem „Búðaskipan á þingvelli (Katastasis), eins og var í manna minnum 1700“, segir, að búðir þeirra Ásgríms Elliðagrímssonar og Gissurar hvíta hafi verið fyrir vestan á, að minsta kosti kemr ekkert fram í Njálssögu eða neinum sög- um, sem geti verið á móti því, og það er fjarri því, að það geti verið nokkuð óeðlilegt, heldr þvert á móti eðlilegt, þvíað eins og kunnugt er af Njálssögu sýnast Austfirðingar að hafa haft flestar búðir sínar fyrir austan á; annars verða af sögunum ekki hin minstu rök leidd að því, að búðir þeirra Ásgríms hafi verið f}>rir aust- an á. Vegr þeirra Ásgríms lá því hvergi í nánd hinu forna Lög- bergi eða Byrgisbúðartanganum, semþeir nefna það. Hér gat því ekki verið nokkur meining í, að við sjálft hefði legið, að þeir myndi berjast, þó að þeir Ásgrímr riði leið sína á þingið; þeim Flosa gat undir engum kringumstœðum verið við neinu hætt eða flokk- unum lent saman, þar sem 45 feta breið gjá eða meir var á mill- um þeirra, sem enginn komst yfir nema fuglinn fljúgandi. ingr, að einungis heiti Flosagjá fyrir vestan Lögberg ; gjáin mun draga nafn af Flosa, síðan hann tjaldaði Byrgisbúð þar upp frá og hefir svo fengið sama nafn alt suðr eftir; vera má, að í fornöld hafi heitið Flosagjá beggja megin við Lögberg, enn Nikuldsargjá kölluð, síðan hann druknaði þar, eftir því sem sagt er, 1742. Eg vil hér geta þess eitt skifti fyrir öll, að eg kalla hraunrimann, þar sem eg hefi sett Byrgisbúð, Byrgisbúðarrima. 3’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.