Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 49

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 49
49 úr henni í Snorrabúð, af því að hún var næst og hefir verið brúk- •uð alt fram á daga Magnúsar lögmanns Olafssonar, sem tjaldaði hana seinast það menn vita með vissu; hefir hún verið marghlaðin upp, eins og nærri má geta, enda sjást innan í henni einar þrjár hleðslur, eins og eg hefi tekið fram við gröftinn á henni; seinast var hún höfð fyrir stekk. Auk þess hefir og grjótið úr Hlaðbúð, ef til vill, verið tekið í veginn, er hann var fyrst lagðr ofan úr Almannngjá, og þegar Kárastaðastigr var gjörðr fair. Vegrinn ofan úr Almannagjá liggr rétt hjá, þar sem Hlaðbúð hefir verið, eða milli hennar og Snorrabúðar ; grjótið hefir áðr verið tekið úr Snorra- búð, af því að hún var þá höfð fyrir stekk, er vegrinn var lagðr. fótt búð þessi sé nú með öllu orðin óljós, þá margsannar Njálssaga það, að búðirnar vóru þó tvær uppi í skarðinu, eins og eg þykist hafa sýnt hér að framan með fullum rökum. Vilji menn nú geta sér til, hvar það var í Almannagjá, sem þeir Flosi ætluðu að leita til vígis, þá er það auðséð, að hvorki fyrir norðan eða sunnan skarðið er neinn staðr, sem fremr öðrum stöðum neinstaðar á þfingvelli var öruggr, enn aftr er það auðheyrt á orðum Snorra goða, að hann hefir þótzt vita einhvern þann stað í gjánni, sem væri fullkomlega örugt vígi. Snorri segir, Njálss. k. :39ii4 t>l. 751 : „enn efþeir komaz þangat, þá fáið ér þá aldri sótta“. Eg get ekki séð nokkurn stað eins hentugan, og sem þessi orð gæti jafnvel átt við, sem Kárastaðastíg (efri gjána), þvíað það er auðsætt, að ef þeir Flosi hefði skipað sér í stíginn, og þeir, sem eigi kómust þar fyrir, farið upp á gjábakkann, þá gátu þeir allir skotið á óvini sína skotum og grjóti, svo að þar var alls eigi auðið að sœkja þá Flosa, hversu mikið ofrefli sem þeir hefði átt við. Mér finst því þessi staðr vera alveg gefinn þannig, að þeir Flosi hafi ætlað sér að hörfa þangað. Eins og eg hefi áðr tekið fram, álít eg, að fimm búðir sé nokk- urn veginn gefnar sem fornar búðir. Snorrabúð, Njálsbúð og Hlað- búð hefi eg talað um, enn þá er eftir að gjöra grein fyrir Möðru- vellingabúð og Vatnsfirðingabúð. Njálss. kveðr ljóst á, hvar þess- ar búðir hafi staðið. þ»egar þeir Flosi í bardaganum á alþingi vóru komnir undir búð Snorra goða og þeir vóru keyrðir þaðan, og þeg- ar Skafti lögsögumaðr vissi, að þorsteinn holmuðr, son hans, var í bardaga með Guðmundi hinum ríka mági sínum, þá gekk Skafti til búðar Snorra goða og ætlaði að biðja Snorra, að hann gengi til að skilja þá með hor.um: „enn er hann var eigi alt kominn að búðardyrunum Snorra, þá var bardaginn sem óðastr. þeir Ásgrímr ok hans menn gengu þar þá at neðan...............f>eir Ásgrímr gengu þá at svá fast, at Flosi ok hans menn hrukku undan suðr með ánni til MöðryellingaMðar“ Njálss. k. 145, bl. 813—814. Af þessu sést ljóslega, að næsta búðin við Snorrabúð verðr Möðru- 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.