Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Page 105
105
hefi aldrei verið uppi 1 virkinu á vetrardag, og get þvf eigi sagt,
hvort mikið muni fenna ofan í dœldina eðr eigi, svo að eg læt það
alveg ósagt.
Eg skal nú reyna að gjöra áætlun um, hversu marga menn
hafi þurft til að verja virkið. Eftir korti, sem eg hefi tekið af virk-
inu, verðr alt ummál þess 190 faðmar. f>ar af koma 72 faðmará
vestr- eða útnorðrhlið virkisins, þar sem klettarnir eru þvergnípt-
astir. Hér þarf mjög fáa menn til varnar, oghygg eg, að 14 menn
sé vel í lagt. Auk þess má telja, að 45 faðmar af ummálinu ann-
ars staðar sé svo þvergnfptir, að eigi þurfi fleiri enn 9 manns til varn-
ar á það svæði. f>á eru eptir 73 faðmar. J>ar af koma 17 faðm-
ar á skörðin. Má ætla, að þar hafi verið hörðust aðsóknin og að
þar hafi þurft 3 menn á hverja 2 faðma eða alls 26. f>á eru enn
eftir 56 faðmar af ummálinu, og eru það annaðhvort nokkurn veg-
inn þvergníptir klettar, eða sterkir grjótgarðar. Gjöri eg, að þar
hafi þurft einn mann á hverja 2 faðma; verða það alls 28 menn.
Eftir þessum reikningi þyrfti alls um 77 manns til varnar virkinu.
Enn nú þarf að hafa nokkra menn til vara uppi á virkinu, til
þess að veita lið, þar sem mest er aðsóknin og mest á liggr, og
má varla ætla færri til þess enn 20. það mun því varla fara fjarri
sanni, þó að vér setjim, að 100 manns hafi þurft að vera á fótum
nótt og dag til að verja virkið. Enn nú þurfa þessir menn hvíld-
ar, svefns og matar, og má varla ætla hverjum manni styttra hvíld-
artíma enn 8 stundir eða þriðjung sólarhrings. Verðr þá enn að
bœta 50 manna við, og verða þá varnarmenn alls 150; eru þá 100
menn ávalt á verði, enn 50 hvílast eða sofa á víxl. Enn nú hefir
enn þurft nokkra menn eða konur til að matreiða handa öllum
þessum mannfjölda, og er eigi gott að ætlast á, hversu margt það
fólk hafi verið.
Nokkuð svipað kemr út, ef vér reiknum, hversu margir menn
komast fyrir í tóttum þeim, sem í virkinu eru. Vestari tóttin er
35 fet á lengd, enn 12 x/4 fet á breidd. í svo breiðri tótt má gjöra
að 8 manns komist fyrir á hverri faðmslengd; verða það alls 48
menn. Hin tóttin er nokkru minni, og mundi taka svo sem 8 færri
enn vestari tóttin. Enn nú verðr að ætla aðra hvora tóttina til
geymsluhúss handa matvælum og vopnum og öðrum forða, sem eigi
hefir verið lítið handa svo mörgum mönnum. Fer þá eigi fjarri
þvf, að 50 manns hafi haft rúm til að sofa í einu. Enn þó að troð-
ið væri í báðar tóttirnar, mundu þær eigi taka fleiri enn 90 manns,
og gæti þá verið, að fólki því, sem þurfti til að matbúa, hefði verið
ætlað svefnrúm í annari tóttinni. Nú er þetta reyndar eigi áreið-
anlegr reikningr, þvíað verið getr, að sumir hafi búið 1 tjöldum,
enn nokkuð virðist það þó benda í líka átt og áætlun sú, sem vér
gjörðum af stœrð ummálsins.