Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Side 7
7
upp kinni að koma um álnamál. Þetta ákvæði miðar bersínilega til
þess að gera enda á því »ranglæti manna« um álnamál, sem sagan
telur tilefni til nímælanna, og er því aðalatriði laganna. Hitt er
aukaatriði, að tvær álnir eru gerðar jafnar einni stiku, og stikan
gerð að lengdarmálseiningu. Jón Sigurðsson heldur, að þessi breit-
ing hafi verið gerð í því skini að laga hið níja íslenska stikumál
eftir hinu enska lengdarmáli, yard, og er síst firir að sinja, að það
kunni meðfram að hafa vakað firir mönnum. Enn hitt er ekki rjett
sem J. S. segir, að islensk stika hafi verið »öldungis jöfn enskri
yard, ef menn kasta brotunuim. 1 yard var víst þá eins og nú =
0,91439 metr., eða sem næst = 35 danskir þumlungar. Enn vjer
munum síðar sjá, að stikan hefur verið sem næst jöfn 0,98286 metr.
eða rúmlega 37 72 danskir þumlungar (37,58); verður hún þá ríflega
2V« dönskum þumlungum lengri enn yard1). Annars munu bein viðskifti
íslendinga við England ekki hafa verið mjög mikil um þessar mundir
(o. 1200)2), og er það því fátt, sem mælir með því, að stikumálið eigi
kin sitt að rekja til ensks lengdarmáls. Það er og óþarfi að sækja
svo langt ástæðuna til þess, að stikan var lögleidd. Hin forna ís-
lenska alin var svo stutt, að hún var mjög óhandhæg til að mæla
með langar voðir eða því um líkt. Líka varð mælingin nákvæmari,
ef mælt var með kvarða, sem var helmingi lengri enn álnakvarði.
Merkileg er regla laganna um það, að »leggja skuli þumalfing-
ur firir hverja stiku«, þegar vaðmál eða ljereft eða klæði sjeu mæld.
Þetta er einskonar uppbót á málinu, sem kaupanda er lögheimiluð,
og um leið trigging firir því, að riflega sje mælt. Þessi siður, að
leggja þumalfingur firir hverja stiku, hjelst að minsta kosti fram und-
ir siðbót3) og er ákvæðið þó ekki tekið upp í Jónsbók, þar sem hún
talar um stiku4)- Áður en stikulögin gengu í gildi, þegar mælt var
með álnakvarða, hlítur þessi uppbót að hafa verið tiltölulega meiri,
líklega »þumalíingur firir hverja alin«, því að mælingin verður því
ónákvæmari og þöi’fin á uppbót því meiri, sem kvarðinn er stittri5);
og munum vjer víkja að þessu síðar.
‘) Merkilegt er, að skotsk alin er talin 37,2 þumlungar enskir eða rámlega 36
þumlungar danskir. Hún nálgast fremur íslensku stikuna, og gæti verið, að þar væri
eittlivert samhand 4 milli. Shr. Murray. Engl. Diot. undir ell 1
a) Um 1188 getur prestssaga Guðmuudar gó ða um kaupferð Ingimundar prests
Þorgeirssonar til Englands, enn sú ferð var farin frá Noregi og til Noregs aftur.
Bisk. I 433. bls. Sturl. Oxf. 105. hls.
’) Morðhrjefahæklingur Guðbrands biskups útg. 22. og 23. hls.
4) Jónsb. Kaupah. 28. (26.) kap. (útg. Ó. H. 234 —235. bls.).
e) Samskonar mælingar-uppbót virðist hafa verið gefin til skams tima i fleiri
löndum. Finnur Magnússon segir í ritg. sinni um verslun Englendinga á íslandi á 15.