Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 7

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 7
7 upp kinni að koma um álnamál. Þetta ákvæði miðar bersínilega til þess að gera enda á því »ranglæti manna« um álnamál, sem sagan telur tilefni til nímælanna, og er því aðalatriði laganna. Hitt er aukaatriði, að tvær álnir eru gerðar jafnar einni stiku, og stikan gerð að lengdarmálseiningu. Jón Sigurðsson heldur, að þessi breit- ing hafi verið gerð í því skini að laga hið níja íslenska stikumál eftir hinu enska lengdarmáli, yard, og er síst firir að sinja, að það kunni meðfram að hafa vakað firir mönnum. Enn hitt er ekki rjett sem J. S. segir, að islensk stika hafi verið »öldungis jöfn enskri yard, ef menn kasta brotunuim. 1 yard var víst þá eins og nú = 0,91439 metr., eða sem næst = 35 danskir þumlungar. Enn vjer munum síðar sjá, að stikan hefur verið sem næst jöfn 0,98286 metr. eða rúmlega 37 72 danskir þumlungar (37,58); verður hún þá ríflega 2V« dönskum þumlungum lengri enn yard1). Annars munu bein viðskifti íslendinga við England ekki hafa verið mjög mikil um þessar mundir (o. 1200)2), og er það því fátt, sem mælir með því, að stikumálið eigi kin sitt að rekja til ensks lengdarmáls. Það er og óþarfi að sækja svo langt ástæðuna til þess, að stikan var lögleidd. Hin forna ís- lenska alin var svo stutt, að hún var mjög óhandhæg til að mæla með langar voðir eða því um líkt. Líka varð mælingin nákvæmari, ef mælt var með kvarða, sem var helmingi lengri enn álnakvarði. Merkileg er regla laganna um það, að »leggja skuli þumalfing- ur firir hverja stiku«, þegar vaðmál eða ljereft eða klæði sjeu mæld. Þetta er einskonar uppbót á málinu, sem kaupanda er lögheimiluð, og um leið trigging firir því, að riflega sje mælt. Þessi siður, að leggja þumalfingur firir hverja stiku, hjelst að minsta kosti fram und- ir siðbót3) og er ákvæðið þó ekki tekið upp í Jónsbók, þar sem hún talar um stiku4)- Áður en stikulögin gengu í gildi, þegar mælt var með álnakvarða, hlítur þessi uppbót að hafa verið tiltölulega meiri, líklega »þumalíingur firir hverja alin«, því að mælingin verður því ónákvæmari og þöi’fin á uppbót því meiri, sem kvarðinn er stittri5); og munum vjer víkja að þessu síðar. ‘) Merkilegt er, að skotsk alin er talin 37,2 þumlungar enskir eða rámlega 36 þumlungar danskir. Hún nálgast fremur íslensku stikuna, og gæti verið, að þar væri eittlivert samhand 4 milli. Shr. Murray. Engl. Diot. undir ell 1 a) Um 1188 getur prestssaga Guðmuudar gó ða um kaupferð Ingimundar prests Þorgeirssonar til Englands, enn sú ferð var farin frá Noregi og til Noregs aftur. Bisk. I 433. bls. Sturl. Oxf. 105. hls. ’) Morðhrjefahæklingur Guðbrands biskups útg. 22. og 23. hls. 4) Jónsb. Kaupah. 28. (26.) kap. (útg. Ó. H. 234 —235. bls.). e) Samskonar mælingar-uppbót virðist hafa verið gefin til skams tima i fleiri löndum. Finnur Magnússon segir í ritg. sinni um verslun Englendinga á íslandi á 15.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.