Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 31

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 31
31 blásið hefir ofan af henni; — Tivort ekki sáust þá merki til rústar upp með Djúpá fyrir ofan Lund, þó síðan hafi horfið? Og þó ekki sé annað, Iwort þeir nafnar hafi komið á staðinn og fengið rétta hugmynd um afstöðu, vegalengdir o. fl. þar niðurfrá? Líka þyrfti að vita, hvort ekki muni eitthvað tilhæft í þeim munnmælum, að Djúpárbakki, sem Njála nefnir, sé einmitt sami bær, sem nú heitir Maríubakki? Auðvitað er, að í lieiðni hefir hann ekki verið kendur við Maríu. Þá fyrst, er kaþólsk trú hafði fest rætur, gat það nafn fest sig við hann. En þá er heldur alls ekki ólíklegt, að nafninu hafi verið breytt, í því skyni meðal annars, að María mey mundi þá verja bakhann sinn fyrir hlaupum Djúpár. Hann hlaut að vera í hættu fyrir þeim ella, því hann stendur á bakka hennar — ofan til móts við Lund vestanmegin. Og Maríubakki stendur enn. Það var nú fyrir kristni, að Grímur fekk Astríðar, — svo ekki kemur það i bága við munnmælin. En það vekur athygli, að Ástriðar er aldrei getið á Bergþórshvoli. Það er helzt að sjá, að hún hafi setið í búi sínu þó Grímur væri með Njáli. En þá er það óneitanlega dálítið óviðfeldið, að hugsa sér konuna austur í Fljótshverfi en bónd- ann vestur í Landeyjum að staðaldri. Eg hefi oft hugsað um þetta og ekki komist að viðunanlegri niðurstöðu, fyr en nú, er eg í vetur heyrði þau munnmæli, sem einkum eiga heima í Þykkvabæ í Rangárvalla- sýslu, en voru þó að mestu leyti ný fyrir mig. Eg verð að skjóta þeim hér inn, þó þau komi ekki Lundi við. Þau eru á þá leið: Fyrrum rann alt vatnið úr Rangám báðum og Þverá sameiginlega til sjávar fyrir austan Þykkvabæinn; myndaði þar á, ærið vatns- mikla og hyldjúpa. Hét hún í fyrstunni Djúpá. Og nœsti bœrinn við hana vestanmegin hét Djúpárbahki. Hann var mesta stórbýli. Og þar bjó Astríður kona Gríms Njálssonar. Þegar fram á aldir kom, var jörðu þessari skift í 3 jarðir, er voru kallaðar Efsti-, Mið- og Syðsti-Bakki. Og enn þóttu það góðar jarðir. En jafnframt þvi sem Djúpár-ivalninu var slept úr nöfnum bæjanna, var lika smám- saman hætt að hafa það um ána: menn fóru að kenna hana við næsta bæinn fyrir austan hana. Hún var kölluð Hólá eða Hólsá.— Það er nú ekki einsdæmi með þessa á. Margar ár hér á landi, sem nú eru kendar við næsta bæinn, hafa átt annað nafn áður. — En það var nú sök sér, þó áin breytti nafni. Verra var hitt, að hún breyttist sjálf. Því olli hinn mikli sandur, sem Kötluhlaupin sendu út í sjóinn og hann bar vestur með landi og hlóð honum að strönd- inni. Sandurinn barst inn í Djúpá-Hólá. Hún gryntist og flóði yfir bakka sína. Og jarðirnar spiltust bæði af vatnagangi og sandfoki — því þá er vatníð fjaraði í millum varð aurinn, sem það hafði borið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.