Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 35
35
Það er kunnugt, að á liðnum öldum var Landnáma lengst af
næsta fágæt. Það var eðlilegt, að ýmsar sagnir, sem frá henni stöf-
uðu í fyrstu, afiöguðust í munnmælunum á svo löngum tíma. Fyrst
eftir 1830 tók hún smámsaman að breiðast út meðal alþýðu — að
eins smámsaman. En þá er líka óefað, að menn hafa leiðrétt eftir
henni margar aflagaðar sagnir. Það virðist ekki hafa verið fyr en
eftir daga síra Jónasar, að nákunnugir menn hafa lesið í henni um
Grímsgil og Reiðarfell og þá þózt sjá, að nöfnin hefðu víxlast í
munnmælunum eftir því sem af henni mátti ráða.
Landnáma segir (I. 21) »Grímr hét maðr, er nam land hit syðra
upp frá Giljum til Grímsgils, ok bjó við Grímsgil«. Nú hafa menn
séð, að ef bærinn Grímsgil hefði verið sá, sem austan í hlíðinni stóð,
þá hefði þar líka hlotið að vera gil, sem bæði gat verið norðurtak-
mark landnámsins og líka að bærinn hefði staðið við það og haft
nafn af því. En slíkt gil er þar ekki, — nema það skyldi þá vera
Selgilið, og landnám Gríms ná yfir Húsafellsland. En bærinn, sem
um er að ræða, stóð langan veg frá því gili og gat alls ekki haft
nafn af því.
Það hafa menn líka séð af Landn., að synir Gríms bjuggu ekki
við Grímsgil eftir föður sinn. (Þar sem þetta er tekið fram í Arb.
1893, bls. 79 1. 24, er orðið ekTci, því miður, fallið burt). Og bæði
af því og af útliti rústarinnar á fjallinu hafa menn ráðið, að þar
muni Grímsgil hafa verið og lagst snemma í eyði. Rústin sýnist
óhögguð landnámstíðarrúst, heflr mjög einfalda gerð: tvö herbergi,
hvort af enda annars, ekkert hús að baki og engin útihús; en tún-
garðsspottar ganga út frá báðum endum.
Enn hafa menn séð, að Svarthöfði, son Bjarnar gullbera, bjó að
Reiðarfelli og var tengdason Tungu-Odds, heflr því verið mikils-
háttar maður og ólíklegur til að sætta sig við að búa uppi á fjalli,
þar sem miður var byggilegt en annarsstaðar þar í sveit. Það var
auðsjáanlegt, að í slíku vetrarríki, sem þar hefir verið, gat bygð
ekki haldist nema meðan skógurinn entist. Mundi stórættaður mað-
ur úr annari góðri sveit álíta eftirsóknarvert að ráðast þangað?
Á þessa leið hygg eg menn hafi dregið ályktanir af því, að
bera Landnámu saman við likurnar.
Og svo var fleira við að styðjast. Samkyæmt Grettissögu, k. 17, bjó
Hafliði að Reiðarfelli og virðist hafa verið góður bóndi. Hann hefir
búið þar um og eftir aldamótin 1000. Tóftin á fjallinu lítur ekki
út fyrir að vera frá svo seinum tíma. En austani fjallinu, þar sem
nú er kallað Reiðarfell, hefir bygð haldist lengi og verið stórbýli.
Bæjartóftin sést raunar ekki: hún hefir verið tekin upp í stekk. Sér
5*