Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 36
36 neðri brún hennar fyrir neðan stekkjartóftina. Þar er grænn blettur, Litlu neðar og austar er kringlótt girðing, nál. 18 fðm. í þvermál, norðvestur hluti hennar hefir verið tekinn upp í dálítinn stekk, sem þar er neðantil við. Þar er líka grænn blettur. Annars er hér al- staðar móagróður. — I miðju hinnar kringlóttu girðingar er dálítil tóft, er snýr dyrum vestur. Þetta hafa menn álitið kirkju og kirkju- garð. — Og hvað gæti það verið annað en kirkja eða bænahús? — En það er þá frá 11. öld og eldra en Húsafellskirkja. Heimreiðar- götur eru margar upp að kirkjunni og bænum. Túnstæðið er á 3 bölum, nokkuð breiðum, er liggja ofan hlíðarbrekkuna og lækjardrög á milli. A efri enda hvers bala eru fleiri eða færri forntóftir, flest án efa peningshús. Heíir verið svo til ætlað, að frá þeim bærist áburður ofaneftir túnbölunum. Eigi þekkist nú smiðjutóftin frá öðr- um tóftum. Eru 3 tóftir, sundurlausar, á efri enda þess balans, sem steðjasteinninn heflr oltið ofan af. Fyrir neðan túnið er alfaravegur, ágætur til reiðar. Bærinn heflr þó ekki verið kendur við manna- reið, eins og t. d.. Reiðskarð? En það kemur ekki þessu máli við. An efa mun það rétt tilgetið hjá M. Þ., að »annat land« er Brandur prestur gaf Húsafellskirkju, hafi verið Grímsgilsland Það er sama þó Grímsgilsland hafl verið uppi á fjallinu. Það er einnig í Húsafellslandi. Húsafell mun síðast bygt þessara þriggja bæja. í fyrstu hafa þar verið sett beitarhús frá Reiðarfelli (sem nú er kallað), fellíð svo verið kent við húsin, en bærinn aftur nefndur eftir fellinu. Með tímanum hefir þar orðið aðalbólið. Þá hefi eg nú skýrt frá hvernig þetta mál horflr við. Mun eigi verða sagt, að breytingin á munnmælunum hafi verið gripin úr lausu lofti. En eigi vil eg að svo komnu fullyrða neitt frekara um þetta. VI. Grettistak á Reiðarfellsbrún fallið. í Árbókinni 1893 bls. 78 er getið um Grettistak á fjallsbrúninni milli eyðibýlanna Reiðarfells og Grímsgils Það er stór steinn á 3 stuðlabergsfótum. Nú nýlega hefir melurinn runnið undan einum fætinum, svo hann hefir fallið flatur og steinninn steypst niður. Hann er því ekki hið sama, einkennilega, Grettistak, sem hann var áður. VII. Skáldskelmisdalur = Skáklsgelmisdalur —? Þar sem Landnáma nefnir Tungufell, II. 1. þá hélt eg fyrst, eins og Kaalund, að það væri heimatungu-fellið í Kalmanstungu. En þar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.