Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 38
38 þá. Þeir hafa hvorki riðið til Varmalækjar né Langholts, sem nú eru næstu bæir, sinn á hvora hönd. Á þeim dögum hefir verið bær í Kálfanesi, milli Fiókadalsár og Geirsár. Þangað áttu þeir ekki langt úr leið og hefi eg hingað til talið vist að þar hafi þeir hlotið að lýsa vígunum. En í sumar (1910) var mér sagt í Borgarfirði að skamt frá Bæ væri eyðibýli, er héti að Reldura og væri sagt að vígunum hefði þeir lýst þar. Fór eg því þangað og vildi sjá, hvort þetta væri líklegt eftir afstöðu. Og svo vildi eg líka sjá rústirnar sjálfar. Þær eru skamt norðaustur frá Bæ og næstum í leið fyrir þeim Snorra. Er þar mýrlendi á milli og keldur í, sem bærinn hefir verið kendur við. Á þeim dögum mun mýrin hafa verið þurt skóg- land nema keldurnar, og þær þó varla jafnblautar og nú. Nú verður að ríða dálítinn krók til að komast frá Bæ að rústum Keldna. Rúst- irnar eru í mýrlendi og er það þegjandi vottur um, að þurlendara hafi þar verið áður. Rústirnar eru glöggvar og eigi mjög niðursokn- ar; enda mun jarðvegur ekki mjög djúpur. Eru rof skamt þaðan og sést þar, að hann er grunnur. Bæjarrústin er græn og hygg eg að hún hafi verið höfð fyrir stekk frá Bæ síðar. Þó hefir rústunum eigi verið breytt Bæjarrústin liggur hérumbil frá austri til vesturs og skiftist í tvær tóftir um miðgafl, sem ekkert er fullyrðandi um dyr á. Breiddin er um 3 fðm. út á veggi. Þeir eru þykkvir og þó mjög fallnir inn. Vestari tóftin er 4 fðm. löng og dyr á vesturenda. Eystri tóftin er 6 fðm. löng og eru dyr á austurgafli. Þar er suðurkampurinu áfastur við kringlótta tóft, sem er 3 fðm. í þvermál. Hún hefir dyr mót suðri og aðrar gagnvart austurtóftar- dyrunum. Ut úr ganginum milli þeirra eru útidyr mót norðri. Eigi eru veggir hinnar kringlóttu tóftar alveg eins þykkvir og bæjarvegg- irnir. Sunnanundir suðurvegg austurtóftarinnar lítur út fyrir að hafi verið útbygging nokkur. Þaðan gengur svo veggur vesturmeð suð- urvegg vesturtóftarinnnar. Eigi er hann nærri jafnþykkur bæjar- veggnum. Milli þeirra verður mjó tóft sem mjaltakviar. Þessi granni suðurveggur þeirrar tóftar heldur svo áfram, sem túngarður. Verð- ur fyrst bugða nokkur á honum og gengur hann síðan í norðvestur, þráðbeinn að kalla og nokkuð langur. Frá enda hans gengur þver- garður í norðaustur. — Nokkrum föðmum fyrir austan hina kringl- óttu tóft er önnur rúst, 8 fðm. löng, er liggur nál. frá norðri til suð- urs. Hún hefir miðgafl með dyrum á 3 faðm. frá suðurenda, en útidyr eru á noiðurenda. Kann það að hafa verið fjós og hlaða. Austurkampur útidyranna heldur áfram til norðurs, sem túngarður, jafnlangur hinum sem til norðvesturs gengur, og endar, eins og hann, við norðaustur-þvergarðinn. Eigi er sá garður lengri en milli garð- endanna beggja, og er hann túngarður fyrir norðurenda túnsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.