Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 62
62
hinum, sem er sunnanvert við hana (bæjarhúsahólnnm), þarstendur
bærinn nú og hefir án efa staðið síðan síra Benedikt ritaði sóknar-
lýsinguna 1842. Þó getur verið að annað nýbýlið, er þau voru tvö,
hafi verið bygt á fjárhúsahólnum og hafi tóftin þá orðið ógleggri við
það eða að fjárhús er nýbýlismenn reistu þar, hafi orðið til að spilla
hoftóftinni þar; orð síra Benedikts eru ekki nægilega Ijós tii að taka
af allan vafa um það, en þau benda helst til að hofið hafi staðið á
bæjarhúsahólnum.
IJm Hóla í H.jaltadal, kirkjuna þar og kirkjugripina væri full
ástæða til að rita allýtarlega, en sökum rúmleysis í Arb. verður það
að bíða að sinni. Sig. Vigfússon hefir skrifað um flesta kirkjugrip-
ina, er þar voru 18861). Af gripum þeim er þar ræðir um eru þessir
eftir nú á Hólum: Nr. 1, altaristaflan; nr. 8, krossmarkið mikla;
nr. 9, krossmark annað minna og 2 mannamyndir útskornar með því;
nr. 10, skírnarfonturinn; nr. 24, minningarspjald með grafskrift yfir
frú Ingibjörgu Benediktsdóttur; nr. 26, prentuð mynd af Paul Gaimard.
Allir hinir gripirnir eru nú komnir til Forngripasafnsins, að tveim
undanteknum þó: nr. 3, sem verið heíir dýrmætur gripur, korpor-
alshú32) fornt, svipað því er Fgrs. á frá Skálholti* * * 8); sá gripur er nú
ekki á Hólum og er mér ókunnugt um hvað um hann hefir orðið;
— og nr. 22, máluð mynd af Ulrich Christian Gyldenlove, stiftbe
falingsmanni, gerð af honum á unglingsaldri, máske einmitt er hann
var gerður að stiftbefalingsmanni hér, hann var þá 14 ára. Þessi
gripur er vís, er hjá fyrv. amtmanni Jul. Havsteen í Reykjavík.
Við lýsingar Sig. Vigf. á gripum Hólakirkju er ýmislegt að at-
huga, skal það þó ekki til tínt hér viðv. þeim gripum, sem komnir
eru til Fgrs., nema þess skal þó getið að nr, 21 er ekki mynd Jóns
læknis Steinssonar, heldur Kristjáns konungs 5., ágætt verk eftir D’
Agar, en nr. 23 er mynd Jóns læknis Steinssonar. — Konumyndirn-
ar, er S. V. talar um að séu á nr. 2, altarisklæðinu, eru englamyndir,
ekki með lúður, heldur reykelsisker, og það sem yfir myndunum
stendur er angelus d[omi]ni og angel[us]. — Viðv. gripunum, sem enn
eru í kirkjunni á Hólum, skal að þessu sinni fátt eitt tekið fram af
því, sem athugnvert er við lýsingu S. V. Hann lýsir altaristöflunni
miklu all nákvæmlega, einkum búningi myndanna og afstöðu þeirra
innbyrðis og má af lýsingunni einni ráða mikið í hverja menn
myndir þessar eigi að sýna, þótt hann láti þess ógetið. Fremsta
‘) Sjá. Árb. '88-92, bls. 90 o. s. frv.
2) Korporaltöskurnar (bursæ corporalium) hafa verið kallaðar korporalshús hér
& landi, t. d. einmitt i úttektunum á dómkirkjunum,
8) Sbr. Arb.’ 09, bls. 50-51,