Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 64

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 64
64 standa: H E T H S og og IGD1) tákna nöfn þeirra. Svo er og. Kross- markið, þ. e. Kristslikaminn sjálfur, mun vera gamalt, en myndirnar, sem settar hafa verið á þvertré undir, sín hvoru megin, eru miklu yngri. Þær eru bersýnilega af presti eða biskupi og frú hans og stafirnir neðan undir benda einmitt ótvírætt á hverja myndirnar eiga að tákna. H. E. TH. S. er = Herra Einar Thorsteinsson og I. Gr. D. er = Ingibjörg Gísladóttir. Þetta er því eins konar minn- ingarmark yfir Einar biskup og fyrri konu hans; hún dó 1695 og hann árið eftir. Myndirnar af þeim þvi frá því um 1700. Skírnarfonturinn stendur nú (síðan 1886) á miðju kórgólfi og ætti að flytjast. Það er engum efa bundið að hann er eftir Guðmund smið Guðmundsson í Bjarnastaðahlíð; en þótt hann sé að þvi leyti íslenzkur, og líklega gerður úr íslenzkum steini, — um það eru ýmsar sagnir hvaðan sá steinn sé —, þá er stíllinn allur á verkinu útlendur barok-stíll (ekki »rokokko«-stíll). Guðmundur lærði smíði erlendis. Eftir hann ætla eg sé ef til vill margt fleira hér á landi, t. d. hygg eg að eftir hann sé legsteinninn, sá er Gísli byskup Þorláksson setti yfir fyrstu konu sína, Gróu Þorleifsdóttur, og sjálfan sig. Hann er úr svipuðum steini og skírnarskálin, og stíllinn í skrautmyndunum á steininum svipaður. — Utskorin aitaristafia úr eik, sem nú er í Vídalín8safninu (á Fgrs.) bendir að mörgu leyti á Guðmund sem höfund sinn. — S. V. hefir misskilið mynd þá er hann segir tákna fæðinguna; sú mynd táknar einkar bersýnilega umskurnina. — Letrið er prentað að ýmsu leyti rangt í Árb. '88—92, bls. 98, — t. d. Sogu fyrir f'sogn (þ. e. fyrirsögn). Auk þessara gripa, er nú voru taldir og S. V. lýsir, á Hólakirkja ýmsa allgóða gripi, svo sem kaleik og patínu, gylt, virðast að mörgu leyti forn, lagið er rómanskt, en annað ásigkomulag bendir til að þau sé ekki gömul; patínudósir góðar úr silfri, stimplaðar með ráð- stofust, Khafnar 1726. Ljósastjakar 4, úr kopar, gamlir, eru á alt- arinu; einn þeirra er stærstur, h. 65 sm., armar 3, lengd út að ljósi 25 sm., þverm. stéttar 25 sm. Á stéttina er það letrað á latínu að herra Gísli biskup Þorláksson hafi gefið stjakann Hólakirkju að gjöf árið 1679. I kórnum hangir nú að sunnanverðu myndaspjald úr tré með útskornum og máluðum myndum af Kristjáni 6. og drottningu hans; andspænis því hangir minningarspjald frú Ingibjargar Benediktsdóttur, með mikilli grafskrift eftir mág hennar, Þórð biskup Þorláksson í Skálholti. ‘) þannig; IGT í Árb. ’88—92, er víst prentvilla.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.