Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 70

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 70
70 verið grafin þar, sem hrossbein hafa fundist. Það virðist þó liggja harla nærri að hugsa sér og skilja það, að hrossakjöt og önnur mat- væli hafi verið lögð í haug með mönnum í heiðni, ekki síður en vopn og búningar, hestar, hundar, áhöld o. fl. Skel.jungsstein nálægt Silfrastöðum athugaði eg 19. VII. Um hann hefir áður ritað í Arb. ’Ol, bls. 25—26, Brynj. Jónsson. Þjóð- saga gömul er um það, að göt þau tvö, sem í honum eru, séu boruð af mannahöndum; er sú þjóðsaga i ísl. þjóðs. I. 245—56. Br. J. segir götin »hafa útlit til að vera mannvirki«, en þykir þó ólíklegt að svo sé. Munnmæli hafa og verið um að götin væru 3, og átti eitt að vera sokkið í jörðu. Er eg skoðaði steininn var hann að öllu leyti ofanjarðar, og var glögt, að hann hafði ekki staðið þarna djúpt í jörðu; götin voru aðeins tvö. Göt þessi eru að öllu leyti náttúrunnar verk og yfirleitt sjást engin mannaverk á steininum; á því er alls enginn vafi. — Það er í rauninni óviðkomandi mál í þessu riti að skýra hversu götin eru til orðin. Slík göt og holur hafa venjulega myndast í steinleðjunni áður en hún harðnaði, en stundum þó t. d. af sjó, í storknað grjót. Götin og holurnar í Skeljungssteini munu mynduð í steinleðjunni af vatni eða lofti. A Abæ í Austurdal var mér bent á mannvirki eitt einkenni- legt. Það er skamt upp frá bænum í dagmálastað, rétt fyrir utan túnið. Það er lítill haugur, um 10 fet að þverm., kringlóttur, og er garður hlaðinn umhverfis; þverm. hrings þessa er 37—40 fet, — hann er sporbaugsmyndaður. Garðurinn er nú mjög lágur, aðeins um J/2 fet og mjór, um ll/a fet, en fullglöggur. Þessu mannvirki fylgir sú þjóðsaga, sem alkunn er í Skagafjarðardölum, að draugur að nafni Dala-Skúli hafi verið settur hér niður. Hann var upp- vakningur úr Vesturdalnum og gerði mikið mein unz Goðdala-prestur sendi hann fram á afrétt og fekk honum það erindi, að telja öll kindaspörð á afréttinum. Að loknu verki kom draugur niður að Abæ og voru þá fætur gengnir upp að knjám. Varð honum þá komið fyrir og hann settur niður á þessum stað. Þjóðsaga þessi er án efa miklu yngri en mannvirkið, sem naum- ast virðist geta verið annað en haugur frá heiðni, og með haugs- garði umhverfis, en hvortveggja eyddur mjög. A Svínavatni er við bæjarlækinn fiöt hella allstór, slétt að ofanverðu; kom hún í ljós er kirkjan var bygð og túnið sléttað þar umhverfis. Það er einkennilegt við hana, að á hana er höggvinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.