Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Síða 86
86
5899. a»/i2
5900. —
5901. —
5902. 28/12
5903. 30/12
5904. —
Flos-VerJc. Tilheyra Madme H. Br. D. Steingrimsen1).
Orðin mjög skemd nf fúa.
Stjaki lítill úr kopar; fóturinn er lok af fornu reykelsis-
keri og eru 2 af keðjulykkjunum í enn. Frá Hraun-
gerðiskirkju.
Altarisdúkur úr hvítu lérepti með bleiku silkikögri og
allur útsaumaður með rauðbrúnu silki. Hann er að
eins bót eða bútur af stórum dúk eða tjaldi, sem gert
hefir verið af mikilli list hvað uppdrátt og saum snertir.
Uppdrættirnir eru mest ýmiskonar blómskraut með
endurlífgunarstýl. A þessum bút miðjum er stór mynd
og stendur umhverfis hana: »Her salfver Tobias sin
Faders Oijen med Gallen«. A öðrum stað er mynd
Andrésar postula með skákrossinn. í einu horninu er
mynd af syndafallinu, þó ekki heil; ef til vill hefir
hún verið á dúknum miðjum er hann var heill. Frá
sömu kirkju.
Patínudúkur gamall með gullvírsbaldýringu og knippl-
ingum. Á miðju stendur: IESU. SANNR LIKH: Frá
sömu kirkju.
Matskeið úr silfri. Aftan á blaðið er grafið T A S og
árt. 1749. Fundin í jörðu í Viðey og orðin mjög gölluð.
Skápur með útskurði nokkrum að framan; hurðir tvær
fyrir með grænleitum glerrúðum. Úr búi þeirra
Stephensena í Viðey.
Skrifborðsstóll gamall úr aski; fyrrum í eigu Robbs
kaupmanns.
Vídalínssafn.
Prófessorsfrú Helga Matzen, ekkja Jóns Vídalíns konsúls, hefir
með bréfi sínu til forstöðumanns safnsins, dagsettu 1. apríl 1909,
lýst yfir því, að málverkið y>Sagalœser i en islandsl: Bondestue«2)
eftir danska málarann prófessor H. Aug. G. Schiött (* 17/12 1823,
f 25/6 1895) hafi talist til þeirra gripa, er þau hjónin ákváðu að
ganga skyldu til Forngripasafnsins. — Jón konsúll Vídalín hafði og
málverk þetta hingað með sér ásamt hinum gripunum, en afhending
þess hafði dregist fram yfir andlát hans.
*) f>. e. Helga Brynjólfsdóttir, kona síra Jóns Steingrímssonar i Hruna.
s) Yér nefnum það á islenzku: „Á vökunniu.