Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Síða 23
23
Gaulverjabæjarhreppur.
Brjdnshús. Svo í Hanntali 1703, síðar Brandshús, eflaust afbökun.
Erútsstaðir. Svo í reikningum Skálholtsstóls um 1640—1650,
einnig A. M. og enn í dag borið fram með skýru h (ekki Bútsstaðir).
Galtarstaðir Svo í máldaga Gaulverjabæjarkirkju um 1220 (Fbrs.
I) og í A. M., síðar optastnær Galtastaðir. Galtar- er eflaust forna
nafnið.
Sandvíkurhreppur.
Kaldaðarnes [Kallaðarnes]. Kallaðar- er hið upphaflega nafn,
sbr. Ln., Flóamannasögu og víðar, en breyttist snemma í Kaldaðar-
nes. Þar í sveit nú optast borið fram Kaldarnes eða Kaldanes, sbr.
Kaldaðarholt í Holtum.
Disarstaðir. í A. M. er jörðin með þessu nafni, sbr. einnig Jb.
1760, nú borið fram Dísastaðir og svo ritað ranglega í síðari heim-
ildum. Dís var kvennmannsnafn að fornu, og enn til á Islandi á 17.
öld. Nafnið kemur fyrir á þrem stöðum í örnefnum í Noregi, sbr.
Lind.
Votmúli. Jörðin hefur líklega heitið Votmúlastaðir, eða eitthvað
þvílíkt, og Votmúli þá verið viðurnefni. Múli er enginn í landar-
eigninni. A. M. hefur Vottmúli, en það er ekki skiljanlegra. Vot-
múli getur vel verið rétt, og verður það nafn því að haldast óbreytt.
Hraungerðishreppur.
Laugardœlir. Þrjár endingar eru tíðkanlegar á þessu nafni:
Laugardælir, Laugardælar og Laugardælur; -dælur tíðast þar í sveit,
en sjaldan utansveitar, -dælar, -dælir nokkuð jöfnum höndum. A
íslandskorti Bj. Gunnlaugssonar Laugardælir, og réttast að halda
því, enda er það í samræmi við önnur samkynja nöfn annarsstaðar
á landinu, t. d. Hofdælir í Skagafirði.
Stóra Amót. Litla Amót. Svo í A. M. og víðar = Áamót, þar
sem tvær ár mætast (Hvítá og Sogið).
Ölvesholt. A. M. hefur ölvatnsholt, og síðar varð nafnið almennt
Ölvaðsholt. En hvorki vatn eða vað er þar nærri. Skammt frá
bænum eru hólar tveir, sem heita ölver og Kúfhóll, og fylgir sú
sögn, að í öðrum sé heygður landnámsmaðurinn, en í hinum reið-
skjóti hans. Þó að ekki sé að öðru leyti reiður að henda á munn-
mælum þessum, sýna þau þó, að þá er þau urðu til, hafa menn
haldið, að bærinn væri kenndur við mann, sem hét ölver.1 Eins
1) Þessar muDnmælasögnr nm ölver og Kúfhól eru teknar eptir frásögn séra
Guðm, Helgasonar.