Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Blaðsíða 50
50
því Sauðlauks-. I Jb. 1696 er þó enn Sauðlaus-, en eptir það fer
Sauðlauks- að útrýma því algerlega. Vafalaust er Sauðlaus- hið upp-
haflega nafn, en þar sem Sauðlauks- er þó orðið allgamalt og stað-
urinn hefur fengið mesta frægð sína undir því nafni, þykir sjálfsagt
að halda þvi. Liklega er Sauðlaus- hér fornlegur framburður og
jörðin hafi heitið Sauðleysudalur = Sauðhagadalur (leysa = engi
eða hagi, sbr. aths. við Kotsleysu i Arnessýslu). Verða þá bæði
nöfnin svipaðrar þýðingar.
Skytjadalur (Skdpadalur). I Sauðlauksdalsvisitazíu Br. Sv. 1639
Skytjudalur, Jb. 1696 Skyttudalur, A. M. Skyttudalur, Skytju-
dalur og Skápadalur, sem jörðin er almennt kölluð. Johnsen hefur
Skápa- og Skyttu-. Vafalaust er Skytja- elzta og réttasta myndin
(skyti = skytta, skotmaður). Með því að Skápadalur er þó orðið
allgamalt og tiðkast nú, þykir réttast að geta þess sem varanafns.
Botn (Vesturbotn). Fbrs. IV, Jb. 1696, A. M. og Johnsen hafa
Botn. 1861 og matsbókin, Vesturbotn, og er þá líklega sagt svo nú.
Patrekshreppur.
Geirseyri. í Fbrs. IV (1446) Gisseyri, Giesseyri eða Geirseyri, í
Sauðlauk8dalsvisitazíu Br. Sv. 1639 Gestseyri, A. M. Gesseyri, en Jb.
1696 Geirseyri, og það nafn er þá farið að tíðkast í bréfum. Er ein-
sætt að halda því, þó að líkur séu fyrir, að upphaflega nafnið hafi
verið Gestseyri.
Dalahreppur.
Skeiði (Kolbeinssskeiði'). A. M. hefur nafnið Kolbeinsskeiði.
Feitsdalur. Feitsdalur í Rafnssögu Sveinbjarnarsonar (Bisks. I),
einnig viða í Fbrs. (Feitsdalur), í Selárdalsvisitaziu Br. Sv. 1639 Feis-
dalur, og í Jb. 1696 og A. M. Feitsdalur. Feigsdalur afbökun.
Hrisdalur. Svo í Fbrs. V, VI, Selárdalsvisitazíu Br. Sv. 1639,
Jb. 1696, A. M. og Johnsen. Hringsdalur í 1861 nýnefni, og hefur
engan rétt á sér, þótt F. setji það í sviga sem gamalt nafn og gilt.
Suðurfjarðahreppur.
Otradalur. Svo i Eyrbyggju, Gíslasögu Súrssonar, Njálu, Sturl.
og mörgum fornbréfum, en Otrar- venjulega síðar (t. d. í Visit.b.
Br. Sv., Jb. 1696, A 'M. o. s. frv.). Otra- vafalaust hið rétta.
Vestur-ísafjarðarsýsla.
Auðkúluhreppur.
Hrafnseyri. Svo er nafnið enn í Jb. 1696 og A. M., auk margra
annara heimilda, og borið svo enn fram þar í sveit einstaka sinn-
um. Þykir sjálfsagt að halda þessu forna nafni i fullri hefð.