Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Síða 31
31
Skaptafellssýslu; flangi er fornt orð, og hefur vafalaust verið viður-
nefni (sbr. sögnina að »flangra«). Flangastaðir í Hvalsnesvisitazíu
Br. Sv. 1642, Jb. 1696 og í A. M. Nú er venjulega ritað Flanka-
staðir og svo borið fram.
Bdreksgerði. Er vafalaust kennt við mannsnafnið Bárekur, en
Bárusgerði (í Johnsen) og Bárugerði (í 1861), afbökun úr því, sbr.
Báreksstaðir (Bárustaði) í Borgarfirði. Bárusker, sem aðalnafn í John-
sen og aukanafn í 1861, eflaust sprottið af misskilningi.
Þóroddsstaðir. Svo í Fbrs. II (1270). Þórustaðir ættu niður að
falla, enda þótt það nafn standi í Jb. 1696.
Gerðahreppur.
Meiðarstaðir (Meiðastaðir). Meiðarstaðir eru í bréfi frá c. 1270
(Fbrs. II) og frá 1563 (Safn til sögu ísl. I B). Meiður líklega viður-
nefni (sbr. sleðameiður o. fl.) gæti og verið mannsnafn (sbr. (Vil-
meiður). Nú hefur jörðin lengi verið nefnd Meiðastaðir og svo borið
fram. Getgátan um að Meiiíðar- eða Mýríðarstaðir sé hið upphaf-
lega nafn, er ósennileg, þótt hún sé allgömul.
Garðahreppur.
Selskarð. Svo í Fbrs. III (1367), IV (Vilkinsmáld), Jb. 1696, A.
M., Johnsen og 1861. Þessara heimilda er getið hér vegna tilgátu í
Safni IV, bls. 915 ura, að Selskarð sé afbökun úr Selsgarður.
Hafnarfjörður.
Ófriðarstaðir. Jófríðarstaðir, sem sjálfsagt er leiðréttingartilraun,
finnast fyrst í prestakallsbók Garðaprestakails 1868. Áður nefndist
jörðin ávallt Ofriðarstaðir og mun réttnefni. í ritgerð eptir Jón
lærða Guðmundsson (Safn III) er getið um bardaga og mannfall, er
þar hafi orðið á 15. öld. Ofriður var og viðurnefni, sbr. einnig mál-
tækið »að vera á Ofriðarstöðumc. Nafnið Jófríðarstaðir ætti að falla
niður.
Reykjavík.
[Reykjarvlk, Vík d SeltjarnarnesiJ. Sbr. Ln Á miðöldunum nefnd-
ist jörðin optast Vík.
Rauðará [Reyðará]. Reyðará er vitanlega rétta nafnið, sbr Fbrs.
III (1395), en nafnið Rauðará, sem skoða má að eins sem framburð-
arbreytingu, hefur fengið svo langa hefð, að það mun mega haldast.