Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Qupperneq 39
39
Grisartunga. Svo í Ln. og víðar. Jörðin kennd við Gris leys-
ingja Skallagríms; eignarfall af Gríss er Grisar.
Dorgarhreppur.
Tandrasel (Tandarasel'). í Stafholtsvísitazíu Br. Sv. 1639 og
A. M : Tandarasel, líklega fyrir Tandrarasel, sem hefur þótt stirt í
framburði, og annað r-ið því fallið burtu, en Tandara- svo dregizt
saman í Tandra-, sem nú er venjulega nafnið. í ættatölum frá 17.
og 18. öld kemur fyrir Tannhamrasel, sem er auðsæ leiðréttingar-
tilraun á Tandaraseli, er menn hafa ekki skilið. Tandri er = eld-
ur í fornu máli, sbr. tandra eða tendra = slá eld, og tandrari væri
þá sá er slær eld, tendrar ljós. Tandrasel má því halda sér sem
aðalnafn, en Tandarasel sem varanafn.
Svignaskarð [SygnasJcarð]. A. M. hefur Sygna- sem aðalnafn og
það kemur fyrir í handriti af Sturlungu; er sennilega upphaflega
nafnið, kennt við Sygni (menn úr Sogni). Annars almenna nafnið
Svignaskarð fyr og síðar, og verður það auðvitað að haldast.
Álptaneshreppur.
Vogalœkur [Voðalœkur]. Voðalækur í Fbrs. VI. (1480) og i
Álptanessvisitazíu Br. Sv. 1642, og virðist því vera upphaflega nafn-
ið. I Jb. 1696 Vogalækur og jafnan síðan, og er því látið haldast,
enda þótt það sé vafalaust afbökun úr Voðalæk, sem þótt hefur ljótt
nafn, enda þótt það sé liklega fremur dregið af voðum (vaðmálum)
en af háskalegu vatnsfalli.
Þurholt (flt ). í Álptanessvisit. Br. Sv. 1642 og A. M. Þurrholt,
Jb. 1696 og Johnsen Þurholt, en í 1861 Þverholt og mun svo kall-
að nú, en er afbökun, sem á niður að falla.
Hraunhreppur.
Hitdrdalur (Hítardalur). Hitárdalur í Ln., en hefur snemma
afbakazt, sbr. athugasemd við Hitárnes. Réttast að halda báðum
nöfnunum sem hliðstæðum, því að nafnið Hítardalur hefur mikinn
rétt á sér, þótt Hitárdalur sé látið vera aðalnafnið. F. setur Hítár-
dal fyrir Hitárdal, sem eldra nafn, ef til vill prentvilla.
Hundastapi. Svo i Jb. 1696, A. M, Johnsen, 1861, og svo nefnt
nú. Hindarstapi finnst hvergi í góðum heimildum.
Hjörsey. Svo í kirkjumáldaga um 1200 (Fbrs. I). Hjörtsey
afbökun.
Isleifsstaðir [Isleifarstaðir]. Jörðin hét að fornu ísleifarstaðir,
Bbr. máldaga Akrakirkju frá c. 1258: Fbrs. I. sbr. III. og IV. (Vilk-