Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Page 66
66
mjög snemma á öldum hafi bæjarnafn þetta breyzt svo í framburði,
að úr því hafi orðið Vatnsskarð, því að til þess þurfti að eins ör-
litla breytingu (Ævarsskarð — Vasskarð — Vatnsskarð). Og því frem-
ur gat þetta nafn komizt inn í mál manna í stað hins gamla, sem
allstórt vatn er þar í skarðinu. Mætti færa að því fleiri líkur, að
hið forna Ævarsskarð hafi einmitt verið þarna, sem nú er kallað
Litla Vatnsskarð En samt dirfist eg ekki að setja nafn þetta sem
forna nafnið á Litla Vatnsskarði með fullri vissu eða frekar en með
spurningarmerki að svo vöxnu máli, meðan þetta efni er ekki rann-
sakað enn ýtarlegar (t. d. um landnám Ævars, staðhætti o. fl).
Vindhælishreppur.
Hafursstaðir. Svo í Fbrs. II (Auðunnarmáld.) og III (Pétursmáld ),
einnig í sama bindi eptir frumriti á skinni frá 1395, Hafsstaðir,
stytting úr því (kemur fyrir í Jónsmáld. Fbrs. 1360: Fbrs. III.) ætti
að falla niður, þótt F. setji það í sviga sem eldra nafn.
Háagerði [Finnsgerði]. A. M. segir, að Háagerði hafi áður verið
kallað Finnsgerði.
Kelduland með Hafurstöllum. A. M. nefnir Hafsvelli, sbr. einnig
Johnsen og 1861, en Ilafursvellir er í manntalsbók Húnav.s um
1740, og mun það upphaflegra en Hraftisvellir, sem er í matsbók-
inni.
Steinnýjarstaðir. Svo í Fbrs V, VI, VIII og manntalsbókum
Húnav.s. á 18. öld, en Steina- hjá A. M. og Johnsen, Stenja- í Jb.
1696 og A. M, og Steinars- í 1861, allt afbakanir. F. setur afbök-
unina Steinarsstaði í sviga sem eldra nafn.
Ormlaugarstaðir. í Fbrs. III (1384) Ormlaugarstaðir, er síðar
hefur afbakazt í Orlaugs- eða örloga- (A. M.), Örlögs- (Jb. 1696),
örlauga- (manntalsbók Húnav.s. um 1740) og loks örlygs- (Johnsen,
1861 og matsbókin), sem á niður að falla Sýnir þetta Ijóslega,
hversu afbakanir geta fengið smámsaman ýmiskonar myndir, er á-
vallt fjarlægjast hið rétta meir og meir, þangað til nafnið er orðið
allt annað, og frumnafnið óþekkjanlegt í afbökuninni.
Hróastaðir. Svo í Fbrs III, Jb. 1696, A. M, Johnsen og 1861,
en Hróarsstaðir í matsbókinni rangt. Jörðin kennd við Hróa (manns-
nafn).