Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Page 14
16
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
(mynd 11). Myndirnar af hinum krjúpandi mönnum með fram-
réttar bækurnar í Teiknibókinni eru greinilega ætlaðar sem for-
skrift að gjafaramyndum, sem sýna afhendingu bóka, sennilega án
tillits til þess, hvort sá, sem afhendir, er sjálfur gjafarinn eða hinn,
sem gert hefur bókina. Tilgangurinn með Teiknibókinni sést greini-
lega á fol. 8r. Þar er mynd af konungi eða krýndum dýrlingi, sem
situr undir baldakin. I vinstri hendi heldur hann á ríkisepli, en hin
höndin er tóm. Teiknarinn hefur skrifað í myndina: „Kalla hann
huat þu villt ok fa honum þat j haundena sem hann skal veria sig
med“. Hér hefur teiknarinn frjálst val um það, hvað í höndina er
látið og þar með, hver maðurinn er. Á sama hátt mætti klæða
mennina á fol. 21v og llv eftir stétt og tízku, en myndinni er aðeins
ætlað að vera forskrift að því, hvernig slíkar myndir eigi að vera.
Önnur fyrirmynd í Teiknibókinni vekur einnig athygli hér, en það
er þrenningarmyndin á fol. 3v (mynd 7). Fyrir utan aðalumgjörð
myndarinnar sést hermaður með alvæpni, sem beygir kné sín, án
þess þó að krjúpa alveg. Hermaðurinn er greinilega óaðskiljanlegur
hluti myndarinnar. Minnir þessi mynd óneitanlega á myndirnar í
ensku 14. aldar handritunum (mynd 5 og 6).
Vitað er, að til Svíþjóðar barst stórt skinnhandrit, sem kennt var
við Orm Snorrason. í handriti þessu var Trójumanna saga og ýmsar
riddarasögur.11
Það virðist nokkurn veginn víst, að Ormur Snorrason á Skarði
hafi látið gera bækur og þær ekki af lakara taginu. Styður það þá
tilgátu, að hann hafi einnig látið gera Skarðsbók. En hvaða aðili
hefur átt að fá þessa miklu og glæsilegu lögbók að gjöf? Því verður
líkast til aldrei svarað með fullri vissu, en það hlýtur að hafa verið
einhver merkur höfðingi eða meiri háttar stofnun. Líklegt er, að
kirkjuleg stofnun hafi verið höfð í huga. Má vera, að hann hafi
verið að launa kirkjugriðin. Það verður vafalaust aldrei vitað, hvort
bókin hefur nokkurn tíma komizt í hendur þeirrar stofnunar eða
þess manns, sem hún var ætluð í upphafi. Bókin hefur sýnilega
alltaf verið á Vesturlandi, en Ormur Snorrason, eða sá maður, sem
lét gera bókina, hefur aldrei ætlað hana til eigin afnota, því að þá
hefði hann ekki látið setja í hana gjafaramynd. Sá maður hefur
ætlað að gefa Skarðsbók, og er gjafarinn á myndinni á fol. 2 recto
mynd af honum sjálfum.