Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Page 35

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Page 35
GRÆNLENZKI LANDNEMAFLOTINN 37 ósennilegt, að Eiríkur hafi átt knörr, þá er hann var dæmdur á Þórs- nesþingi, en hins vegar kynni hann að hafa átt góðan farmabát, þar sem hann var eyjabóndi. í Grænlendinga sögu segir: ,,Bjó Eiríkur þá skip sitt til hafs“, en í Landnámu og Eiríks sögu: „Hann bjó skip sitt í Eiríksvogi". Af þessum frásögnum verður ekki ráðið, hvort Eiríki hafi verið gefið þetta skip eða léð, eða hvort hann átti það áður en hann var fjörbaugsmaður. Lýsingin á feluleiknum með skipið er ekki trúleg og minnir mjög á undirbúning að utanför Þórarins svarta í Mávahlíð, en hann var ger útlægur um svipað leyti og Eiríkur1. Dímunarvogur var heppilegur staður djúpskreið- um skipum, en hann var í alfaraleið. Dagverðarnes er skammt frá, en þar var verzlunarhöfn, og til Skógarstrandar er einnig stutt. Hafi Þorgestur verið að svipast um eftir Eiríki í eyjunum, eins og Eiríks saga hermir, er ósennilegt, að hann hefði ekki orðið stórskips var í Dímunarvogi. Ef Eiríkur hefur leitað Gunnbjarnar- skerja á haffæru skipi,2 er líklegt, að vinir hans og styrktarmenn hafi látið honum þann farkost í té. Þegar talað er um haffært skip í þessari ritgerð, er alltaf átt við löglangt kaupskip, en það hlaut að vera stærra en tólfæringur, þar sem það mátti sessum telja.3 Ekkert er vitað um efnahag þeirra manna, sem sigldu úr Breiða- firði með Eiríki sumarið 986, en varla hafa margir þeirra átt knerri eða þeir hafi haft ráð á að kaupa slík skip. Þeir menn, sem nafngreindir eru í grænlenzka landnemahópnum, eru svo til allir ókunnir. Þar sem ætla má, að þeir hafi verið úr söguríkustu hér- uðum landsins, Breiðafirði og Borgarfirði. en þeirra er hvergi getið (nema tveggja eða þriggja), hefur naumast farið mikið fyrir þeim, meðan þeir voru hér á landi, né heldur, að þeir hafi verið í nánum tengdum eða skyldleika við þá höfðingja, sem sögurnar fjalla mest um. Áður hefur lítillega verið vikið að því í þessari rit- gerð, að ekki hafa aðrir verið í færum að eignast sæmilegan knörr en þeir, sem voru allvel efnum búnir. Skoðun Jóns Jóhannessonar er á sömu lund, en hann kveður þó enn fastar að: „Til hafskipa- kaupa þurfti mikið fé“.4 1 Isl. fornrit IV, bls. 57. 2 Helge Ingstad segir í riti sínu (Landet under leidarstjernen, bls. 18): „Noen av dem fulgte skuten utover til Elidaoya". Þess er hvergi getið I heimildum, að skip þetta hafi verið skúta. 3 Jónsbók hin forna, Akureyri 1858, bls. 222. •1 Islendinga saga I, bls. 119.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.