Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Síða 54

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Síða 54
56 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS báta í Noregi og á honum sótt til fiskveiða á opið haf, allt að 45 sjómílur undan landi.1 Ekkert er vitað, hvenær íslendingar taka upp á því að hafa báta sína miklu mjóbyrtari en tíðkaðist í Noregi, að hafa í þeim marg- falt fleiri bönd og gæta þess, að langt væri milli skara, svo að þeir yrðu kjarkmiklir, eins og Breiðfirðingar kalla það, eða með öðrum orðum traust og mikil sjóskip. Engin goðgá er að láta sér detta í hug, að þessar breytingar séu á orðnar í breiðfirzka bátnum, áður en Eiríkur fer til Grænlands og báturinn sé þá að öðru leyti búinn að fá það lag, sem sjómennskureynslan við ísland hafði kennt vestlenzku landnemunum og niðjum þeirra að væri heppilegt. Breiðfirzki báturinn var ekki skarpur í botninn, því að 5—6 neðstu umförin mynduðu botnlagið. Bil milli banda var sjaldnast meira en 10% þumlungur, en oftast 9—10 þumlungar. Breidd hans í hlutfalli við lengd var oftast meiri en á öðrum íslenzkum eða norskum bátum, og ætíð mest um hálsþóftu. Stefni var jafnan hringlotað, en ekki trjónumyndað. Framstefnið var haft atlíðandi uppundir hnýfilkrappa, en eftir það var það oft haft sem næst lóðrétt eftir legu kjöls. Að framan var báturinn brjóstamikill, svo að hann bar af sér sjóinn, en jós honum ekki upp á sig eða gekk undir hann. Um bitaþóftu hafði báturinn mikinn mótstöðumátt og lyftikraft, sem var mjög nauðsynlegt, þegar bára var hálsuð. Lengd siglu var tvöföld mesta breidd skipsins og dýpt þess í við- bót + breidd kjalar, en siglulengdin réði mestu um stærð seglsins, er var þversegl. Öll þau einkenni breiðfirzka bátsins, sem hér hafa verið nefnd, stuðluðu að því, að hann var afburðagott sjóskip, vel lagaður fyrir farm, en jafnframt tiltölulega léttur í róðri og afbragðs siglinga- bátur í hliðarvindi og undanhaldi. Þegar ég ræði hér um breiðfirzka bátinn, má ekki skilja orð mín svo, að þeir hafi allir verið nákvæmlega eins, öllu heldur mætti segja, að engir tveir hafi verið eins, því að fram undir síðustu aldamót og jafnvel lengur voru þeir allir smíðaðir eftir auganu. En þrátt fyrir það voru höfuðeinkennin hin sömu. Og þótt ég kenni þennan bát við Breiðafjörð, má ekki heldur skilja orð mín á þá leið, að bátar af þessari gerð hafi hvergi verið annars staðar en í Breiðafirði. Þess hefur áður verið getið, að þeir voru suður á 1 Geografiske annaler 1939, bls. 149.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.