Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Side 58

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Side 58
60 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS tíð Eiríks rauða og á öldinni, sem leið. Reynslan af daglegum við- burðum verður þeim notadrjúgur skóli. Oddur Ófeigsson frá Reykjum, er heita má samtímamaður Eiríks, ætlar eitt sinn utan á kaupskipi sínu og siglir norður í Þorgeirs- fjörð, en þar tekur af byrinn. Skip er þar fyrir og á því austmenn, er einnig biðu byrjar. Oddi leiðist biðin, lætur róa sér í land og gengur upp á eitt hátt fjall og sér þaðan, að annað veður er úti fyrir, en logn á firðinum. — „Oddur biður þá flytja út skipið. Þeir mæltu kaupmennirnir, að þeim myndi drjúgt verða að róa yfir hafið. Oddur segir: „Svo hæðilegt, sem yður þykkir, að vér róum, þá myndi eg það ætla, að hér myndi þér vor bíða“. Þeir taka byr og sigla til Orkneyja og lögðu eigi fyrr segl; voru þar nökkurar vikur; fóru aftur síðan með góðum byr, og lágu þar kaupmennirnir, er þeir komu aftur"1 — Oddur þekkir til staðhátta og kann veður að lesa. Önnur dæmi fjölmörg lík þessu er í íslenzkri siglingasögu. — í hinu kunna útveri á Fjallaskaga í Dýrafirði er Gönguhóll, en þang- að upp fóru formenn, er þeir vildu sjá veðuráttir á hafinu.2 Eiríkur rauði hefur vafalaust kunnað að lesa veður og fara vel að sjó og jafnframt margir af þeim mönnum, sem með honum fóru úr Breiðafirði. En ekki verður veður alltaf séð fyrir, og svo kann að hafa verið á leið Eiríks til Grænlands. — Ef þannig skyldi hafa borið til eftir tveggja dægra siglingu, að byr hefði tekið af, var þá nokkuð annað að gera fyrir landnámsflotann en láta berast fyrir straumi, þangað til kulaði á nýjan leik og koma því þd innan í, eins og Breiðfirðingar orða það? Svarið við þessari spurningu er komið undir því á hvers konar skipum leiðangursmenn Eiríks voru. Hafi nokkur hluti flotans verið teinæringar eða tólfæringar (farma- og fiskibátar), áttu áhafnir þeirra í senn kvölina og völina, að róa í átt til íslands eða halda ferðinni til Grænlands áfram á árum. Vafalaust hefur Eiríkur sagt samferðamönnum sínum allt, sem hann vissi, að þeim gæti komið að haldi á ferðalaginu. Hafi hann haft orð á því, að þá er eftir væri naumur þriðjungur leiðarinnar til Grænlands byrjaði að gæta straums í suðurstefnu og hann væri þeim mun stríðari, sem nær drægi landi, er ekki ósennilegt, að ein- hverjir hafi valið þann kost, að halda á árum í áttina til fyrir- 1 Isl. fornrit VII, bls. 358. 2 Sjómannablaðið Víkingur IX, bls. 46. (Þorbergur Steinsson: Hræðileg nótt á Skagamölum).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.