Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Page 104

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Page 104
106 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS hljóti frá upphafi að hafa verið undir brekkurótunum, þar sem hann hefur verið svo lengi sem menn vita, en ekki uppi á blábrún h j allans. Þá eru það húsin sjálf. Aðalhúsin eru greinilega tvö aflöng hús, hvort af enda annars í beinu framhaldi. (Vera má, eins og Voion- maa hélt, að fremra húsinu hafi verið skipt í tvennt með þverbálki, en ég kýs að líta á þetta sem eitt hús, og er áður á það drepið). Fremra húsið er 13 m að lengd og 3,5 m að breidd. Fremri endi þess er niðri í sjálfri brekkunni, og má vera, að þar hafi verið timbur- gafl, en annars eru veggir allir af venjulegri torf- og grjótveggja- gerð. Á þessum gafli eru dyrnar og fram úr þeim gríðarmikil grjót- lögn, sem öll er í þrepum eða eins konar tröppum, vegna þess að hún nær alllangt niður í bratta brekkuna. Inn frá dyrum og inn eftir gólfi miðju, hér um bil inn að innra gafli, er flór lagður hellum, samfelldum á köflum, en nokkru gisnari á sumum stöð- um. Mesta breidd þessa flórs er 1,5 m, en yfirleitt er hann nokkru mjórri. Báðum megin við flórinn eru steinaraðir að endilöngu, greinilega hærri en hann, og myndast þannig eins og bálkar með báðum langveggjum, sitt hvorum megin við flórinn. Hér og hvar skiptast svo þessi bálkar um þvert með steinaröðum, ekki þó þannig að þar komi fram alveg reglulegir básar. Eigi að síður eru þetta þó undirlög undir milligerðum milli bása, svo sem vera ber í fjósi, og jafnvel Voionmaa sjálfur gengur svo langt í lýsingu sinni að kalla þetta bása, án þess þó að hann drægi af því hina réttu ályktun. Því að hús þetta er í einu og öllu venjulegt tvístætt fjós, með öllum þeim einkennum, sem í slíku húsi eiga að vera, með flór eftir endi- löngu gólfi, sem hallar fram að dyrum á gafli, básstokkum og básum. Húsið inn af fjósinu er 9,75 m að lengd og 3 m að breidd, og er þverveggur með dyrum milli húsanna. Eftir endilöngu húsinu hafa verið tvær stoðaraðir, um 70 sm frá veggjunum, og hafa stoðirnar ýmist verið grafnar niður í gólfið eða látnar standa á stoðarstein- um. Þessar stoðir hafa vitanlega borið þak hússins, og er hér öllu eins fyrir komið og til dæmis í hlöðunni í Gröf í Öræfum, sem Gísli Gestsson rannsakaði og hefur skrifað um, enda er engum vafa bundið, að þetta hús er hlaða, fjóshlaðan á Lundi á sínum tíma. Litla útbyggingin út úr miðri austurhlið húsanna þarf engrar sérstakrar skýringar eða réttlætingar við. Hún gat verið til margra hluta þarfleg, og sýnilega gat verið mjög þægilegt að geta gengið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.