Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Blaðsíða 23
UM ROKKA
27
Skotrokkar á 19. og 20. öld
Raula ég við rokkinn minn
rétt svona upp á gaman.
Hann hefur danskur dreiarinn
dável rekið saman.
Gamall húsgangur.107
Breytt merking heitisins skotrokkur á 19. öld
í ritinu Eftirmæli átjándu aldar, þar sem Magnús Stephensen, síðar kon-
ferenzráð, mælir fyrir munn aldarinnar, segir svo: „Mér til hamingju sá eg
snældurnar fæcka, en rocka aptur innleidast, þó skot=rockurinn sé mér aptur
horfinn ad mestu."108 Magnús segir að vísu aðeins að skotrokkurinn sé
að rnestu horfinn, en að því er best er vitað liggja engar heimildir fyrir um
tilvist eða notkun skotrokka hér á landi eftir lok 18. aldar, það er að segja
handknúinna skotrokka.
Að líkindum var þegar á fyrri hluta 19. aldar farið að nefna fótstigna
spunarokka með hliðarhjóli og láréttum pöllum skotrokka. I íslensk-lat-
nesku orðabókarhandriti sem skráð var um 1830-1840, er orðið skotrokkur
útlagt colus rote laterali}09 þ.e. rokkur með hjóli til hliðar, og verður þar
ekki skorið úr um gerðina. Ekki verður það heldur gert með vissu um þá
skotrokka sem haft var eftir hundrað ára gamalli konu, Olöfu Bjarnadóttur
á Egilsstöðum á Völlum á Fljótsdalshéraði 1934, að flust hefðu inn „þegar
hún fyrst mundi eftir," þ.e. um og upp úr 1840; hefðu þetta verið „stórir
rokkar, nefndir 'skotrokkar.'"110 Mjög er þó ólíklegt að það hafi verið
sams konar skotrokkar og tíðkuðust í iðnaðarstofnunum á seinni hluta 18.
aldar, og verður raunar að álíta að þarna hafi verið um að ræða fótstigna
rokka með hliðarhjóli. Einnig er trúlegast að svo hafi verið um skotrokk
sem nefndur er í heimild varðandi fjórða áratug 19. aldar en fest á blað á
þessari öld, en hún er á þá lund að piltur, Bjarni Bjarnason á Hvoli í Mýrdal
(f. 1821), hafi smíðað sér skotrokk - og raunar einnig vefstól - innan við
fermingu.111
Heimildir um spunarokka með hliðarhjóli ísvörum til ÞjóðháttadeUdar
Öruggar heimildir sem höfundur veit um varðandi ofangreinda nafngift
á fótstignum spunarokkum með hliðarhjóli og þá jafnframt urn tilfærslu á
heitinu skotrokkur í íslensku með þessum hætti eru þó ekki eldri en frá
ofanverðri 19. öld. Við lauslega könnun á þeim 109 svörum sem bárust við
spurningum Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns Islands um spunarokka sem
send var heimildarmönnum í nóvember 1965 og síðar,112 kom í ljós að allir