Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Blaðsíða 58
62
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
urnar viku iðulega 50-250 ár frá réttum aldri og flestar stofur vanmátu
óvissumörk sín, raunveruleg óvissumörk voru oft tvisvar til þrisvar sinn-
um víðari (Baxter, 1990).
Þessi umfangsmikla rannsókn, sem gerð var undir nafnleynd, sýndi að
brýn þörf er á reglubundnum samanburðarmælingum og skipulegu gæða-
eftirliti. Alþjóða-kjarnorkustofnuninni í Vín (IAEA) hefur nú verið falið að
skipuleggja samanburðarmælingar á tveggja ára fresti. Fyrstu mælingarnar
voru gerðar 1990 og niðurstöðurnar hafa þegar verið kynntar (Rozanski,
1991). Þær voru nú ekki gerðar undir nafnleynd, mæligildi hverrar stofu
eru nú þekkt. Mikilvægur áfangi hefur náðst með því að fella niður nafn-
leyndina því mælingarnar þrýsta nú enn frekar á stofurnar að bæta tækni
sína hafi niðurstöðurnar ekki verið viðunandi.
Hér verð ég að láta nægja að kynna aðeins einn þátt mælinganna en
hann nær einungis til stofa sem beita vökvasindurtækni, sem er ein af
þremur mæliaðferðum við aldursgreiningu, en um þessar aðferðir verður
rætt nokkru nánar í 4. kafla. Stofurnar fengu tvö nákvæmlega eins benzen-
sýni og þurftu einungis að setja þau í sérstakt glas og mæla og bera niður-
stöðuna saman við hliðstæða mælingu á staðalsýni, þ.e. sýni með þekktum
C-14 styrk. Hér þurfti enga forvinnu við sýnið og mælingin ætti því að
vera nákvæmari en almennar aldursgreiningar.
Polach (1990) dró niðurstöðu þessara mælinga saman á ljósan hátt sem
sýndur er á 1. mynd. Stofunum 12 er raðað eftir x-ásnum eftir vaxandi gildi
á þeim aldri sem mæling þeirra gaf og óvissa hverrar stofu er sýnd með
lóðréttu striki. Hver stofa á þarna tvö mæligildi, til aðgreiningar er annað
sýnt með opnum hring en hitt með svörtum depli. Lárétta línan sýnir rétt-
an aldur. Væri allt með felldu ættu niðurstöður allra stofanna að liggja þétt
við línuna og um tveir þriðjuhlutar punktanna ættu að liggja innan óvissu-
markanna frá línunni. Mikið vantar á að svo sé.
Myndin sýnir vel að þótt samkvæmni flestra stofa sé góð er nákvæmni
þeirra flestra óviðunandi, rétta gildið er í meirihluta tilvika utan óvissu-
markanna. Lítum t.d. á mæligildi stofu r (lengst til hægri), þau liggja þétt
saman en frávik mælinganna frá réttu gildi er um 800 ár! Gildin hjá stofu
a eru ekki fjarri lagi, en stofan hefur vanmetið samkvæmni mælinga sinna.
Polach segir í grein sinni að svipaða skekkju megi einnig sjá í niðurstöðum
rannsóknastofa sem beita gastalningu og AMS aðferð. Vonlegt var að einn af
þátttakendunum á ráðstefnunni í Glasgow segði að dökkt ský lægi yfir C-14
aldursgreiningum og varpaði skugga efasemda yfir niðurstöður þeirra.
I Ijósi þess sem hér hefur verið rakið er ekki óeðlilegt að niðurstöður
einstakra C-14 aldursgreininga séu dregnar í efa þegar þær stangast á við
aðrar upplýsingar. Ég vona að sú dökka mynd, sem hér hefur verið dregin