Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Blaðsíða 41
UM ROKKA
45
höfundar 30.4.1991, og munnlegum upplýsingum Hildar Hákonardóttur í samtölum í
maí 1992, lagfærði Sigurjón Kristjánsson í Forsæti, Arnessýslu, rokkinn. Var það raunar
Sigurjón sem sagði, í ÞÞ 1287, að rokkar með hliðarhjóli hefðu verið nefndir stólrokkar,
sbr. supra, 127. tilvitnun.
143. Samkvæmt upplýsingum í safnskrá Byggðasafns Arnesinga, Selfossi, afriti höfundar 30.4.
1991, og í samtölum höfundar við Hildi Hákonardóttur, einkum 19.3.1992. Ennfremur í
símbréfi frá henni til höfundar 15.5.1992, en samkvæmt því hafa ættingjar Ragnhildar
Gísladóttur staðfest upplýsingarnar um feril rokksins. Um sennilegan norskan uppruna
rokksins sjá infra, 145. tilvitnun.
144. Loc. cit.
145. BÁS 152. Upplýsingar um rokkinn fékk höfundur frá Hildi Hákonardóttur í símtölum
19.3.1992 og 22.5.1992, í símbréfi 15.5.1992 og þar hjálögðu afriti af bréfi til Hildar frá
Helga Ivarssyni á Hólum dagsettu 25.6.1990, en heimildarmenn Helga voru uppeldissystir
hans, Guðfinna Hannesdóttir frá Hólum (systir Magnúsar, gefanda rokksins), og Ágúst
(f. 1921), sonur Guðbrands. I símbréfinu kemur fram að Hildur átti sjálf tal við Guðfinnu
áður en hún sendi það, og sagði Guðfinna þá að Guðbrandur hefði, að hana minnti,
smíðað rokkinn eftir norskum rokki; sbr. supra, 143. tilvitnun. Um rokkinn segir Helgi í
sínu bréfi að hann hafi eingöngu verið „notaður viö grófan spuna, að spinna hrosshár
eða tvinna gróft ullarband."
146. Þjms. 8047 og 15685.
147. MA 1989: 45 og MB 1987:13. Upplýsingar í síma frá Guðrúnu Kristinsdóttur, 22. og 24.6.
1992, sbr. infra, 156. og 157. tilvitnun.
148. í Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði: BSV 1129 og 1130, komuár líklega 1957, BSV 1590,
komuár um 1961, BSV 2471, komuár um 1968, og án nrs., komuár 1991. Upplýsingar í
síma frá Jóni Sigurpálssyni 8.5. og 19.6.1992.1 Byggðasafni Rangæinga, Skógum: Danskur
rokkur sem dönsk kona gaf safninu. Upplýsingar frá Þórði Tómassyni 7.3.1989. Auk
þessara tíu rokka hefur höfundur haft spurnir af tveimur eða þremur rokkum með þessu
lagi, einum í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, einum í Byggðasafni Akraness og nær-
sveita og ef til vill einum í Byggðasafni Borgarfjarðar í Borgarnesi.
149. Þjms. Ns. 59. Þjóðminjasafn Islands. Safnskrá. Norska safnið. Friðrik Á. Brekkan skráði.
Marta Hoffmann tekur í bréfi til höfundar 24.2.1989 upp úr grein í norsku blaði, Dalane
Tidende í Egersund 17.9.1950, hluta af frásögn varðandi afhendingu gjafar norsku safnanna
í Reykjavík 18.7.1950. Þar er rokkurinn talinn smíðaður af Andreas Jolson Moi (sbr. infra,
158. tilvitnun), en ekki eru sögð nánari deili á smiðnum og ekki fylgir lýsing á rokknum.
Þess skal getið að fjórtán pílárar eru í hjóli þessa rokks, sbr. einnig Hoffmann (1991), bls.
171, 224. mynd, en algengast virðist annars að tólf pílárar séu í hjóli norskra rokka af
þessari gerð, sbr. 14. og 19. mynd: norskur rokkur frá 1934, í Minjasafninu á Burstarfelli,
og ibid., bls. 81, 96. mynd, þótt stundum séu þeir átta, sbr. ibid., bls. 86, 105. mynd. Sjá
jafnframt supra, 140. tilvitnun.
150. Þjms. 8047. Þjóðminjasafn Islands. Safnskrá, 25.2.1920. Matthías Þórðarson skráði. í skránni
segir ennfremur að Margrét Pálsdóttir hafi verið „systir Þóreyjar, konu Bjarna á Reyk-
hólum, en fóstra seljanda."
151. Steingrímur J. Þorsteinsson, fón Thoroddsen og skáldsögur hans, I-II (Reykjavík, 1943), I, bls.
17, og II, bls. 698; og ÍÆ, II, bls. 164.
152. ÞÞ 1258; sbr. supra, 120. og 42. tilvitnun.
153. Sbr. einnig supra, 42. tilvitnun. Á rokknum í Norska safninu, Þjms. Ns. 59, sbr. supra, 149.
tilvitnun, eru einnig fjórir framstólpar.
154. Þjms. 15685. Þjóðminjasafn Islands. Safnskrá, 28.8.1956. Þorkell Grímsson safnvörður
skráði. Sjá einnig Jón Guðnason og Ólafur Þ. Kristjánsson, íslenzkar æviskrár, VI (Reykjavík,
1976), bls. 348. Rokkinn gaf Elín Kjartansdóttir, Grundarstíg 6, Reykjavík.
155. Upplýsingar í bréfi til höfundar frá Guðrúnu Kristinsdóttur minjaverði 1.11.1989.