Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 38

Norðurljósið - 01.01.1981, Qupperneq 38
38 NORÐURLJÓSIÐ sannar. Hún sagði, að þær væru sannar. En nú veit ég betur. Var það sagan um „stígvélaða köttinn?“ Nei, nei, miklu fallegri saga. Það voru sögur um staðinn þarna uppi, sagði barnið og benti með litlu, hvítu fingrunum sínum upp í himinblámann. Ég er nærri búinn að gleyma því. Það var saga um eitthvert álfaland, uppljómað af elsku og gleði. Svo var getið um einhvem undra mann, sem kom þaðan hingað niður. Hún sagði, að hann elskaði mig. En nú man ég ekki meira, enda sagði pabbi, að það væri ekki þess vert að muna það. Þetta væri aðeins uppspuni, smábörnum til skemmtunar. Kynlegt bros lék um varir unga mannsins. Óánægja og eirðarleysi skinu út úr andlits svip hans. Andlits- drættirnir báru vitni um vonbrigði og spillt líferni. Þótt hann væri tiltölulega ungur, hafði hann sökkt sér niður í glaum og gjálífí heimsins. Einmitt af því, að hann hafði tæmt allar uppsprettur, sem yeraldlegar unaðssemdir veita, og hafði líka orðið fyrir vonbrigð- um í ástamálum, þá var hann kominn að þeirri niður- stöðu, að lífið væri ekki vert þess, að því væri lifað. Hann starði fyrst framan í unga og saklausa andlit- ið, síðan upp í óendanlegan himinblámann. Ekki þess vert, að muna það, auðvitað ekki. Nú varð þögn. Drengurinn hvessti djúpu og bláu augun á þennan nýja kunningja sinn, eins og hann vildi rannsaka hann nákvæmlega. Loks varð hann fremur kynlegur á svipinn og mælti: Mér líkar vel við þig, því að þú talar eins og þú skiljir mig. Fóstra segir, að ég sé óánægður vegna þess, að ég sé skemmdur, af því að allt er látið eftir mér. Pabbi segir, að það sé af því, að ég sé veikur og hafí engin mök við aðra drengi. En mig langar ekki til að vera eins og aðrir drengir. Þeir eru svo vondir og háværir, gera ekki annað en ólmast. Þeir vilja ekki sitja og tala við mig. En komi það fyrir, að þeir geri það, þá segja þeir, að ég sé svo undarlegur. Svo fara þeir burt frá mér. Heldur þú, að ég sé nokkuð undarlegur? Við erum báðir sama markinu brenndir. Við erum þreyttir á lífinu, er ekki svo? En þeir, sem ennþá njóta unaðar þess, geta ekki skilið það. Mig langar til að verða sæll, sagði drengurinn með angurblíðum rómi. Hann renndi um leið augum yfír dimmbláa hafíð. Alsæll, á ég við. Heldur þú, að ég verði það nokkum tíma? Ungi maðurinn svaraði engu. Fóstran kom í sömu andrá. Það er kominn tími til að fara heim, Eiríkur minn, sagði hún, og leit um leið á hinn nýja kunningja hans. Ungi maðurinn rétti úr sér: Hann stóð þar í mann- dóms þroska, fullur af fjöri og afli. Hann horfði niður á litla og veiklulega sjúklinginn. Er hann ekki einbirni? spurði hann. Jú, herra minn, hann er einbirni, - sonur herra Edmunds Wallace, sem á allar jarðeignir hér í kring, svaraði fóstran með hátíðlegum rómi. Laut hún um leið niður til að laga sessuna í vagninum. Er hún ók drengnum burt, bætti hún við: Faðir hans er nýfarinn af stað til útlanda. Verður hann einn eða tvo mánuði í burtu. Þess vegna er blessað bamið svona einmana- legt. Eiríkur litli hristi höfuðið. Nei, ég er ekkert ein- manalegur. Ég fæ oft fréttir af pabba. Mér þykir gam- an að fá bréf, en skemmtilegra þó að tala við fólk. Ætlar þú .að verða hér á morgun? Ég veit ekki, hvað þú heitir. Kafteinn Graham, svaraði ungi maðurinn hlæjandi. Já, þú munt, ef til vill, sjá mig hér á morgun. Foringinn ungi fór leiðar sinnar með vindil í munn- inum, og mælti við sjálfan sig: Sir Edmund Wallace, vantrúarmaðurinn mikli! Jæja, það er varla nokkur vafí á því, að hann hefur rétt fyrir sér. 2. KAFLI Samtal við Graham. Morguninn eftir mættust þeir aftur, þessir einkenni- legu kunningjar. Ungi maðurinn, sem ella gekk fram hjá með mannhaturslegu afskiptaleysi, hlustaði með vaxandi ánægju á kynlegt, en þó indælt tal Eiríks litla. Ætli nokkur maður í heimi geti ráðið við sjóinn? spurði drenghnokkinn, um leið og hann renndi aug- um yfír æðandi bylgjurnar, sem brotnuðu á hafnar- garðinum og ultu freyðandi yfir allt, sem fyrir þeim varð. Nei, enginn, svaraði vinur hans. Hefur þú ekki heyrt söguna af kónginum, er lét setja stólinn sinn á sandinn og bannaði bylgjunum að koma nær, þó að væri aðfall. Hvílíkur heimskingi! Með þessu vildi hann koma vitinu fyrir hirðmenn sína. Þeir héldu, að hann væri guðdómlegur. Hvað er að vera guðdómlegur? Að geta framkvæmt allt, svaraði Graham hikandi. Ég vildi gjarnan vera guðdómlegur. Veistu, hvað ég mundi þá gera? - Nei. Þá skyldi ég sigla þama upp í hvíta skýið, langt burt frá öllu og öllum. Þar mundi ég svo liggja, uns sólin hnígur í æginn, og sigla svo beint inn í dýrðina. I hvaða dýrð? Þú hefur séð hana - gullfallegu, rauðu og ljósleitu rákimar, sem eru svo yndislegar. - Það hlýtur að vera eitthvað á bak við þetta allt saman. Lestu ekki álfa- sögur?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.