Lögrétta - 01.03.1932, Page 12

Lögrétta - 01.03.1932, Page 12
135 136 LÖGRJETTA og þrábiður mig- að drekka mjólkurbolla á morgnana. Jeg lofa því til þess að gera bann rólegan. En hvernig hugsa karlmenn? Jeg get ekki drukkið mjólkurdropann frá börnunum. Börnin verða að lifa, þau eiga allt lífið framundan, mitt líf er allt liðið — á þrjátíu árum. Jeg reyni oft að hugga mig við þá hugsun, að jeg sje ekki eina konan, sem svona stendur á fyrir. Milljónir kvenna búa við sömu eða verri kjör. En geta menn borið slíka neyð í sameiningu. Jeg held ekki......f einverunni hugsa jeg oft um það, hvað verði um börnin mín, sem alin eru upp á slíkum tímum, fullum af neyð og angist og efa. Jeg fyrirverð mig næstum því fyrir hamingjusama æsku sjálfrar mín. Ef til vill lifa þau það í draumi, sem veru- leikinn varnar þeim.....f herberginu fyrir handan situr hann, sem ekki á að sjá það, að jeg græt stundum. Hann á minsta sök- ina og þjáist mest. Hann á enga sök á því, að honum er varnað vinnu og verður að horfa á það bundnum höndum og blæðandi hjarta, að fjölskylda hans sígur dýpra og dýpra í djúp óvissunnar......... Jeg hef skyldur, sem jeg verð að inna af hendi og þeirra vegna get jeg ekki varpað frá mjer lífinu. Þess vegna verð jeg að berjast hinni hörðu baráttu fyrir tilverunni, hvort sem jeg sigra eða fell. Jeg er ekki ein í bar- áttunni, bömin og maðurinn unna mjer og ef til vill á lífið einhverja miskunn. 6r hreþpan að þverra? Prófessor J. Maynard Keynes hefur skrifað margt um kreppuna, orsakir henn- ar og afleiðingar, en hann er, eins og kunn- ugt er, einhver merkasti hagfræðingur, sem nú er uppi. Aðalorsök kreppunnar er einnig að lians áliti hið geisilega verðfall peninganna. Það hefur orðið til þess, að raska öllum eigna- og skuldahlutföllum ein- staklinga og ríkja, svo að fáar ríkisstjórnir hafa nú tekjur, sem svara til þeirra gjalda, sem þær hafa tekið að sjer. Þetta hrun breiðist út sjálfkrafa. Samkepnin um við- skifta- og skuldajöfnuðinn er ekki lengur einungis barátta milli einstaklinga og stofnana, hún er barátta milli þjóða og ríkisstjórna, sem allar reyna á allan hátt að gera alþjóðlegan viðskiftajöfnuð sinn sem hagstæðastan með því að takmarka innflutninginn á allan hátt og örva út- flutninginn og hagur eins í þessum efnum er annars tjón. Þetta er ljóst dæmi um áreksturinn, sem nú á sjer stað milli heild- arinnar og einstaklingsins. I tilraunum sín- um til þess að bæta sinn eigin hag, gerir hver þjóð um sig ráðstafanir, sem eru háskalegar fyrir velgengni nágrannans. Hjer um bil öll þau ráð, sem menn mæla nú með, eru slík eyðingarráð, kerfi til þess að buga nágranna sína með því að svelta þá. Launalækkanir, tollaálögur, gengislækk- anir, sparnaðarkröfur, alt í samkepnis- skyni við aðrar þjóðir og til ills. Sannleikurinn er sá, að gjöld eins eru tekjur annars. Þegar við spörum okkur einhver gjöld, bætum við að vísu okkar hag, en spillum jafnframt annars manns hag og ef þessí aðferð verður algeng fer illa fyrir okkur öllum. Ástandið er því ilt að áliti Keynes, en ekki vonlaust. Batavonin er að hans áliti fyrst og fremst fólgin í því hversu mikla seiglu, hversu mikinn lífsþrótt það við- skiftakerfi, sem nú er búið við, hefur sýnt. Þar að auki álítur hann, að enn sje ekki kominn tími til þess, að komið hafi í ljós allur hagurinn, sem af því hljótist, að Stórabretland hvarf frá gullinnlausninni, því að sú ákvörðun mum hafa heilladrjúg áhrif á allan heiminn. Hún hefur stöðvað verðfallið í mjög mikilsverðum hluta heims- ins. En skifting þjóðanna í tvo flokka, með og án gullinnlausnar, hefur einnig haft þau mikilsverðu áhrif, að hrinda af stað þeim eðlilegu öflum, sem á sínum tíma munu á- reiðanlega grafa undan og máske eyði- leggja alveg afstöðu gulllandanna tveggja sem kröfuhafa. Keynes segist álíta að þessi afstaða Frakka verði alveg orðin að engu fyrir árslok 1932, en í Bandaríkjunum muni ef til vill standa lengur á þessu, þótt stefnan þar sje sú sama. Gullstraumurinn frá Indlandi og úr námunum kemst áreiðan- lega á það stig, að hann verður meiri en jöfnuður gulllandanna og skeður þá í raun- inni ekki annað en það, að gulllöndin upp- skera eins og þau hafa sáð. j

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.