Lögrétta - 01.03.1932, Síða 13

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 13
137 LÖGRJETTA 138 Að áliti Keynes er því nú þegar komin af stað sú hreyfing, sem að lokum getur ljett af kreppunni og hruninu. Spurningin er sú, hvort þetta verður áður en fjármála- kerfið og alþjóðlegt lánstraust bugast al- veg undir okinu. Ef svo fer, er leiðin opin fyrir nýrri sameiginlegri fjármálastefnu, alþjóðlegri dreifingu fjármagnsins og verð- hækkun og þá stefnu má til hægðarauka kalla verðaukningar- eða verðbólgustefnu (Inflation). Ef ekki tekst að koma á alþjóð- legri, kerfisbundinni verðhækkun, er ekki til önnur lausn en sú, að skuldunautarnir bregðist allir, hið núverandi lánstrausts- kerfi hverfur og nauðsynlegt verður að byggja upp nýtt. Keynes álítur að ekki þurfi að koma til þessa allsherjar hruns, honum þykir líklegt, að sigrast hafi verið á verstu hættunum síðustu mánuðina. £andbúnaður í Sovjet-ríkjunum I Rússlandi hafa bændurnir verið kom- múnismanum þyngstur ljár í þúfu. Þeir hafa þumbast á móti þjóðnýtingarskipun- um og ráðagerðum stjórnarinar og neytt hana til þess að breyta þeim. Kommúnism- inn á höfuðvígi sín í verksmiðjum borg- anna, en verkalýðurinn þar getur ekki án búnaðarafurðanna verið og þess vegna verður skipulagið að sveigja sig talsvert mikið eftir bændunum. Meðal ráðandi manna rússneska kommúnistaflokksins hafa skoðanirnar verið talsvert skiftar um það hvaða stefnu ætti að framfylgja í búnað- armálum. Sumir hafa viljað knýja fram í flýti og með valdi algerða þjóðnýtingu bú- skaparins, aðrir hafa viljað fara vægar og rólegar í breytingarnar. Hvorutveggja hef- ir í raun og veru verið reynt. Ríkið hefir komið upp mjög stórum búum, slegið sam- an mörgum jörðum, notað vjelar í stórum stíl og látið bændur vinna í þessum „korn- verksmiðjum“ eins og hverja aðra verka- menn. Tilraunirnar um þetta nýja búskap- arlag eru merkilegar og fara einnig víðar fram en í Rússlandi, fyrst og fremst í Ameríku og ýmsir helstu forvígismenn iðn- menningarinnar, aðallega Ford, tru tals- menn þess. Margt í þessu virðist gefast vel. í Rússlandi hefur stórbúskapurinn þó að ýmsu leyti strandað á þjóðnýtingartil- raunum kommunistanna og mótspyrnu bændanna gegn þeim. Þar við bætist svo það, að undanfarið ár, eða síðastliðinn vet- ur, hefur verið einhver hinn erfiðasti til mataröflunar síðan í hallærinu 1921—22. Þrátt fyrir ýmsar umbætur og framfarir í iðnaðinum er búnaðurinn ekki svo á vegi staddur, að hann geti sjeð fólkinu fyrir viðurværi. Að vísu er talsvert flutt út af búnaðarafurðum til þess að afla erlends gjaldeyris, en það er (1930 og 31) ekki nema rúmur helmingur þess, sem flutt var út í meðalári fyrir stríð og veldur ekki, út af fyrir sig, þeim skorti, sem heima fyrir er. Þegar alt kemur til alls, hafa þær vonir, sem menn gerðu sjer um þjóðnýtingu bún- aðarins og um stórbúskapinn, nú brugðist að miklu leyti. Þetta hefur orðið til þess, að nýlega hafa verið gefnar út nýjar fyrirskipanir um rússneskan landbúnað, þar sem slakað er að mörgu leyti á fyrri kröfum, svo að al- gerð þjóðnýting á landbúnaðinum er eigin- lega úr sögunni meðan þau ákvæði gilda. Þessi nýja stefna Sovj et-stj órnarinnar í búnaðarmálum er einkanlega fólgin í fjór- um stjórnarauglýsingum. Sú fyrsta var gefin út seinast í mars, hinar í maí. Sam- kvæmt þeirri fyrstu er bændum á sam- vinnubúunum leyft að eiga gripi í sjálfs- eign og er ámælt þeim starfsmönnum, sem reynt hafa að kúga bændur til þess að láta af hendi búfjenað sinn til almenningseign- ar. Tvö næstu ákvæðin eru um mikla mink- un á því vörumagni, (korni og hveiti), sem bændur eru skyldaðir til að láta af hendi við ríkið gegn ákveðnu verði. sem það tiltekur sjálft. Það sem afgangs er, mega bændur nú selja sjálfir á mörkuðum ríkisins eða eftir eigin vild. Loks er afnum- inn skattur sá, sem áður hvíldi á markaðs- verslun bændanna og afnumið verðlagseft- irlitið, eða hámarksverðið í einkaverslun i)ændanna. Breytingarnar eru því talsvert miklar og' mikið losað um sameignarákvæð- in og fyrri þjóðnýtingarstefnu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.