Lögrétta - 01.03.1932, Blaðsíða 17
145
L ÖGRJETTA
inn. Um leið og fiskurinn var dreginn upp
úr vatninu gaddfraus hann, því að hörku
frost var á og var fluttur stífur og stein-
dauður, að menn hjeldu, heim í eldhús og
var svo lagður þar í volgt vatn. Nokkurum
stundum eftir að hann hafði „helfrosið“ í
hörkunni synti han spillifandi í troginu
(segir Scientific American). Náttúrufræð-
ingur, sem frjetti um ]?etta, fór að rann-
saka það og hugsa um það og af því hafa
sprottið hraðfrystingartilraunirnar, sem frá
er sagt hjer að ofan.
'Nýjar vítamínrannsóknír
Á síðustu árum hefur verið lögð vaxandi
áhersla á rannsóknir á vítamínum eða fjör-
efnum og fræðimenn eru sífellt að gera
nýjar uppgötvanir á sviði þeirra. Nýjustu
og merkustu rannsóknirnar hafa gert tveir
doktorar í Cambridge í Englandi, Bowden
og Snow. Þeim hefur tekist að einangra
og framleiða A-vítamín. Vítamín eru, eins
og kunnugt er, efni, eða eiginleikar í
efnum, sem eru nauðsynlegir fyrir viðhald
lífsins. Það mun hafa verið austurrískur
læknir, Kramer að nafni, sem fyrstur benti
á gildi vítamínanna, eða á það, að græn-
meti og ávextir eða ávaxtasafi, gæti lækn-
að sjúkdóma, t. d. skyrbjúg. Menn veittu
vítamínum fyrst athygli vegna þeirra á-
hrifa, sem skortur þeirra gat haft. En
menn voru fram á síðustu tíma alveg í ó-
vissu um eðli þeirra. Menn greina milli sex
vitamintegunda, A, B, C, D, E og G og
koma þau, eins og kunnugt er, fyrir t. d.
í lýsi, grænmeti, eggjum, smjeri o. s. frv.
Fræðimenn hjeldu fyrst, að sennilega
væri ekki unt að greina vítamínin sjálfstæð
úr efnum þeim, sem þau kæmu fyrir í, eða
einangra þau, þau mundu vera of dreifð og
of smá til þess. Þetta hefur reynst rangt.
Á einu eða tveimur seinustu árunum hefur
tekist að prófa á efnafræðilegan hátt til-
veru ýmsra vítamína og eitt eða tvö hef-
ur tekist að einangra og framleiða sem
hreina krystalla og annað þeirra, D-vita-
min, er nú fáanlegt sjerstakt og nefnt Cal-
ciferol. Tilraunir Englendinganna hafa nú
146
opnað þann möguleika, að hægt verði einn-
ig að framleiða á svipaðan hátt önnur víta-
mín. Aðferð þeirra er í því fólgin, að beita
sjerstökum (monocromatic) ljósáhrifum á
vítamínin, eða mólekul þeirra. Þeir hafa
gert sjer sjerstakt áhald með kvartskryst-
öllum, sem framleitt getur ultrafjólublátt
ljós með hvaða bylgj ubreidd, sem vera skal,
mjög tært og magnað. Með ljósáhrifum er
hægt. að breyta vítamínum á ýmsan hátt.
Mólekul efnanna gefa frá sjer geisla, sem
eru mismunandi eftir áhrifunum, rauðir eða
hvítir, eða taka við þeim undir vissum
kringumstæðum. Menn geta því fengið
ýmsar upplýsingar um eðli mólekulsins af
þessum geislum og jafnframt breytt þeim
og haft áhrif á þau. Rannsóknirnar og að-
ferðirnar eru ekki við annara hæfi en sjer-
fróðra manna í efnafræði og eðlisfræði. En
ef þessar rannsóknir geta efnt það, sem
fróðir menn (t. d. Sir Frederick Hopkins,
einhver helsti vitaminfræðingur heimsins)
segja að þær lofi, munu þær hafa mikið
hagnýtt gildi fyrir heilsufar og mataræði
manna og niðurstöður þeirra koma því
öllum almenningi við.
T ornfræðíngafundur
Rannsóknimar á frumsögu eða forsögu
mannkynsins hafa líklega aldrei verið rekn-
ar af eins miklu kappi og með eins góðum
árangri og á árunum eftir stríðið, enda
hafa helstu menningarþjóðirnar lagt til
þeirra stórfje. Þessar rannsóknir hafa ver-
ið allmjög á tvístringi og enn hefur varla
verið unnið úr þeim fullnægjandi heildar-
yfirlit, enda er sumum þeirra enganveginn
lokið enn og ný og ný merkileg atriði eru
að koma í ljós. Þeir fræðimenn, sem við
þetta fást hafa ekki heldur átt þess kost,
að koma saman eftir stríð, en á stríðsár-
unum tók mjög fyrir alþjóðleg fundahöld
um vísindaleg efni. Nú á að bæta úr þessu
og í sumar er haldinn í London alþjóða-
fundur frumsögufræðinga undir forsæti Sir
Charles Peers, forseta enska fornfræðafje-
lagsins og hefur slíkur fundur ekki verið
haldinn síðan 1912, í Genf. Meðal ræðu-