Lögrétta - 01.03.1932, Page 18

Lögrétta - 01.03.1932, Page 18
147 LÖGRJETTA 148 manna á þessum fundi eru C. L. Wooley, talar um ársetningu fyrstu konungagraf- anna í Ur, Sir Arthur Evans um rannsókn- irnar á Knossos (en frá þessu hvorutveggja hefur verið sagt í Lögrjettu), Miss Garodd talar um rannsóknirnar á Karmel, Leahey um Austur-Afríkurannsóknirnar o. s. frv. og loks fjallar einn flokkur fundarins um eng- ilsaxneska og keltneska fomsögu, m. a. um víkingaferðirnar. Um 500 fulltrúar sækja fundinn. £oftslagsbreytíngar 'Ný shýríng dr. Snnes Allir hafa heyrt talað um ísaldir, þekkja að einhverju leyti kenningarnar um um- skifti hita og kulda og um loftslagsbreyt- ingar, sem orðið hafi á jörðunni. Því neit- ar enginn, að loftslagið hafi verið breyt- ingum háð, en um hitt kemur fræðimönn- um ekki saman, hvernig á breytingum þessum standi. Nú hefur alþektur stjörnu- fræðingur, Dr. R. T. A. Innes í Johann- esburg í Suður-Afríku sett fram (í ,,Scientia“) nýjar skýringar, sem mörgum þykja sennilegar og mikið eru ræddar sem stendur. Hann heldur að þykt og þjettleiki gufuhvolfs jarðarinnar muni ráða miklu um loftslagsbreytingar. Hann bendir á það m. a. að jafnvel á Miðjarðarlínu sjeu há- fjöll hulin jökli (í Afríku), en hitabeltis- ástand fyrir neðan, þrátt fyrir það þótt sólargeislarnir ættu að falla eins heitir eða helst heitari og magnaðri á fjallatindana en á láglendi og hafflöt. En hann segir að þessu valdi ekki geislamagn sólarinnar heldur minni þjettleiki og þyngd loftsins yfir fjallatindunum. Ennfremur álítur Dr. Innes, og leggur jafnvel meiri áherslu á það, að loftslagsbreytingum jarðarinnar hafi valdið aðkomandi orsakir, fyrst og fremst áhrif frá halastjömum. Hann bend- ir á það, að ljósrannsóknir á halastjörnum hafi leitt það í ljós, að í þeim muni vera ýms efni (Cyanoyen, hydro-carbons og carbon monoxide), sem haft geti gagngerð áhrif á loftslag jarðarinnar, jafnvel þótt það blandaðist mjög litlu af þeim. örlítið af kolsýru í gufuhvolfinu mundi hita lofts- lagið mikið, máske svo mikið, að heim- skautaísinn bráðnaði. Aukning á kolsýru mundi geta leitt til nýrrar steinkolaaldar. Slíkt mundi þjá mjög sumar æðri lífteg- undir, þangað til vaxandi gróður hefði aft- ur útrýmt úr loftinu kolsýrunni. Þá mundi jörðin verða þurrari og kaldari uns nýr árekstur yrði“. Ennfremur álítur Dr. Innes, að sjálfur sólargangurinn, eða gangur sól- kerfisins í geiminum muni geta valdið lol'tslagsbreytingum, er sólkerfið hefur far- ið gegnum einhverjar geimþokur (cosmical clouds). Dr. Innes segir sjálfur, að hjer sje um að ræða tilgátur, sem athuga þurfi, en þær sjeu sennilegri en eldri tilgáturnar. Hinar helstu þeirra eru, eins og kunnugt er, í því fólgnar, að loftslagsbreytingarnar valdi annaðhvort mismunandi hitamagni sólar- innar, eða breytingar á lögun jarðarinnar, ‘Ný manntegund Nú líður varla svo nokkurt ár, að ekki finnist einhverjar nýjar leifar forneskju- mannsins í fornum jarðlögum og koma þannig í ljós fleiri og íleiri tegundir. Ný- lega hefur hollenskur jarðfræðingur, C. Ter Haar, fundið nýja hauskúpu í Solodaln- um á Java, skamt þar frá, sem Dubois gerði hinn fræga Pithecan-þrópus-fund sinn fyrir svo sem 40 árum. Þessi nýja mann- tegund, Homo Soloensis, er talin frá miðj- um pleistocentíma, og er því engan veginn elsta manntegund, sem þekt er, því Pek- ing-maðurinn (Sinanþrópus) og Java og Piltdown-maðurinn eru eldri, en Neanderdal- maðurinn er hinsvegar yngri, en fræðimenn (t. d. Elliot Smith) telja þó ýmislegt líkt með báðum kúpunum og muni hjer fundið millistig milli Javamannsins (apa-mannsins) og Neanderdalmannsins, nokkuð svipað þeirri manntegund, sem kölluð er Homo Rhodesiensis. Menn liafa ekki enn unnið til fulls úr síðustu frumsögufundunum, svo að samkomulag sje um uppruna þeirra, eðli og afstöðu. Ameríski prófessorinn Osbome heldur því fram, að vagga mannkynsins

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.