Lögrétta - 01.03.1932, Side 19
149
LÖGRJETTA
150
hafi staðið í Mið-Asíu og þaðan hafi mann-
kynið breiðst út í austur og vestur. Mönn-
um kemur enn ekki saman um það, hvort
síðustu beinafundirnir styrki þetta eða
veiki. En þeir hafa varpað nýju og merki-
legu ljósi yfir frumsögu mannsins og enn
sýnt að hann er miklu eldri í hettunni en
inenn höfðu áður haldið.
„^Kololía"
‘Mýjar eldsneytístílraunír
Olían hefur á síðustu árum valdið bylt-
ingu í eldsneytismálum heimsins, ekki síst
í kyndingu skipa. Olíukyndingin hefui' rutt
sjer ákaflega mikið til rúms, vegna þess að
olían hefur orðið ódýrari en kol, og þótt
þægilegri og hreinlegri. Þetta hefur
haft mikil og hagkvæm áhrif á verslun og
iðnað olíulandanna, svo að olíuverslun og
olíuframleiðsla er orðin einhver áhrifamesti
þáttur heimsverslunarinnar. Kolalöndin
hafa hinsvegar beðið við þetta talsverðan
hnekki, ekki síst Bretland. Fyrir nokkurum
árum hófu menn þess vegna fyrir alvöru
tilraun til þess að hagnýta kolin á nýjan
hátt, svo að þau yrði samkepnisfær við olí-
una. Menn reyndu að mala kolin mjög
smátt í duft og breyta þeim í vökva. Til-
raunir, sem Bergius gerði í þessa átt, voru
á sínurn tíma mjög umtalaðar. Tilraununum
hefur látlaust verið haldið áfram, þótt
þeim hafi lítt verið á lofti haldið. Nú er
svo að sjá, sem þessar tilraunir sjeu að
koma að gagni, bera hagnýtan árangur,
sem menn gera sjer miklar vonir um. Eitt
af skipum Cunard-línunnar, Scythia, hefur,
seint í júní, notað til kyndingar á ferð yfir
Atlantshaf nýja svonefnda kol-olíu, sem
fjelagið hefur látið framleiða og er látið
mjög vel af henni.
Það eru þrír menn í þjónustu Cunard-
fjelagsins, Mr. R. A. Adam vjelfræðingur,
Mr. F. C. Holmes, efnafræðingur og A. W.
Perrins vjelfræðingur, sem starfað hafa að
þessum tilraunum í um þrjú ár. Kololía
þeirra er sambland af kolum og olíu, 60 af
hundraði af olíu og 40 af hundraði af kol-
um, sem mulin eru mjelinu smærra og
samlagast alveg olíunni, svo að úr hvoru-
tveggja verður vökvi næstum því alveg
eins og olía, nema eilítið dekkri. Það var
lengi nokkurum erfiðleikum bundið að fá
þessháttar sambland, að kolin settust ekki
á botn blöndunnar, en þeir erfiðleikar hafa
nú verið yfirunnir. Menn gera ráð fyrir
því, að ef til vill megi nota í blönduna meiri
kol og minni olíu. Ef þessi nýja kololía
reynist vel til frambúðar, eins og kunnug-
ir búast við, getur hún haft mikið gildi fyr-
ir útgerðina og bætt hag kolalandanna,
sem orðin voru aftur úr í samkepninni við
olíuna.
£íf á stjörnunní Venus?
74ýjar rannsóhnír á TAount Wílson
Menn hafa um margar aldir skráð og
skrafað margt um líf á öðrum stjörnum.
Sumir hafa talið það fjarstæðu, að hugsa
sjer, að vitsmunalíf sje einungis til á jörð-
unni og sjá enga ástæðu til þess, að hún
ætti að vera til þess útvalin öðrum hnött-
um fremur, að ala slíkt líf. Aðrir þykjast
þvert á móti geta bent á ýmislegt til stuðn-
ings því, að möguleikar til lífs sjeu varla
annarsstaðar fyrir hendi en einmitt á jörð-
unni. Undir báðar skoðanirnar hafa menn
viljað renna vísindalegum og trúarlegum
rökum. Hjer á landi eru alkunnar skoðanir
dr. Helga Pjeturss á þessum efnum.
Nú er nýkominn boðskapur frá einhverri
helstu st j örnuathugunarstöð heimsins, á
Mount Wilson í Californíu, um nýjar athug-
anir, sem bendi á möguleika þess, að líf sje
á plánetunni Venus. Þetta er bygt á því, að
menn hafa nýlega veitt því athygli við
rannsóknir á Mount Wilson, að í gufuhvolfi
Venusar er kolsýra og sennilega mjög mik-
ið af henni. Þessi athugun var gerð með
litrófs- (spectroscope) rannsóknum, þannig,
að ljósinu frá Venus var sundrað í ýmsa
liti úr hinum stóra (100 þml.) kíki stofn-
unarinnar. Ljósið er í raun og veru end-
urkastað sólarljós, en þegar það fór gegn-
um gufuhvolf Venusar varð sumt af því
fyrir áhrifum af kolsýru, en það kemur
fram í litrófinu í dökkri línu og eftir því